Ævintýraleg atburðarás í Hvíta húsinu

Óhætt er að segja að mikið hafi gengið á í Hvíta húsinu í þessari viku. Öll spjóta standa nú á Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Donald Trump
Auglýsing

Frá því á mánu­dag þegar Was­hington Post greindi fyrst frá því að Don­ald J. Trump Banda­ríkja­for­seti hefði lekið leyni­legum upp­lýs­ingum um hin svo­nefndu ISIS hryðju­verka­sam­tök, þá má segja að upp­nám hafi verið í Hvíta hús­in­u. 

Heim­ild­ar­menn Was­hington Post voru emb­ætt­is­menn sem ekki vildu koma fram undir nafni, og voru upp­lýs­ing­arnar sagðar afar við­kvæm­ar. Trump átti að hafa deilt þeim með Sergey Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rússa, og Sergey Kis­lyak, hinum umdeilda sendi­herra Rússa í Was­hington DC.

Síðan þessi frétt birt­ist fór af stað atburða­rás sem ekki sér fyrir end­ann á enn­þá. 

Auglýsing

Nokkur atriði má þar telja til. 

1. Don­ald Trump brást æfur við fréttum Was­hington Post. Hann sagði frétt­irnar rangar og þær væru dæmi um „falskar frétt­ir“. Undir þetta tóku starfs­menn hans í Hvíta hús­inu, meðal ann­ars fjöl­miðla­full­trú­inn Sean Spicer. Á fundi í Hvíta hús­inu fóru ráð­gjaf­arnir Stephen Bann­on, Mike Dubke, Sarah Sand­ers og fyrr­nefndur Spicer afsíðis um tíma, og heyrðu blaða­menn þá öskur og læti innan úr her­berg­inu. Eitt­hvað var aug­ljós­lega ekki eins og það átti að ver­a. 

2. Wall Street Journal greindi síðar enn meira frá mál­inu í gær, og sagði að upp­lýs­ing­arnar sem Trump lak í Rússa hafi sann­ar­lega verið háleyni­legar og taldar við­kvæmar, því þær voru komnar frá ísra­elsku leyni­þjón­ust­unni Mossad og yfir­völdum í Ísr­a­el. Líkt og var með fréttir Was­hington Post þá var þessu mót­mælt í Hvíta hús­inu.

3. Í gær­kvöldi tók þetta til­tekna mál, síðan nýja stefnu. Þegar Trump við­ur­kenndi, fús­lega, að hafa deilt við­kvæmum leyni­legum upp­lýs­ingum með Rúss­um. Hann sagð­ist síð­ar, á Twitter aðgangi sín­um, að hann hefði gert þetta af „mann­úð­ar­á­stæð­um“ til að reyna að fá Rússa til meira sam­starfs í bar­átt­unni gegn ISIS. Fyrra tal for­set­ans og starfs­manna hans, um falskar frétt­ir, reynd­ist því ekki á rökum reist. 



4. Í gær­kvöldi og nótt, að íslenskum tíma, voru síðan sagðar fréttir af því að í minn­is­blaði James Comey, sem Trump rak úr starfi yfir­manns FBI á dög­un­um, kæmi fram að Trump hefði kraf­ist þess að rann­sókn alrík­is­lög­regl­unnar á tengslum Mich­ael Flynn, hins brottrekna fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa, við Rússa, yrði hætt. Þing­menn úr báðum flokk­um, Demókrata og Repúblikana, hafa lagt fram kröfu um að öll gögn um sam­skipti for­set­ans við Comey verði lögð fram og þing­menn fái mögu­leika á því að greina þau. Sér­fræð­ingar sem Was­hington Post ræddi við, sögðu að mögu­lega væri Trump að brjóta lögin með þessum afskiptum af rann­sókn­inni, ef þessar upp­lýs­ingar reynd­ust rétt­ar. 

5. Repúblikan­inn John McCain sagði að þessi atriði sem tengd­ust leka hans á upp­lýs­ingum til Rússa og meintum afskiptum af rann­sókn­inni á tengslum Flynn við Rússa, væru alvar­leg og að Banda­ríkja­þing þyrfti að fá réttar upp­lýs­ingar um það sem hefði gerst. Sam­kvæmt breska rík­is­út­varp­inu BBC á hann að hafa sagt við valda gesti í kvöld­verði á dög­un­um, að málin sem tengd­ust Trump, væru nú á svip­uðum stalli og Watergate hneykslið, sem að lokum leiddi til þess að Richad Nixon, þáver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, fór úr emb­ætti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent