Stýrivextir lækkaðir í 4,75%

sedlabankinn.jpg
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sent­ur. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því 4,75%.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar nú í morg­un. 

„Traust­ari kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við verð­bólgu­mark­miðið og hækkun gengis krón­unnar hafa gert pen­inga­stefnu­nefnd mögu­legt að ná lög­boðnu mark­miði um verð­stöð­ug­leika við lægra vaxta­stig en ella,“ segir í yfir­lýs­ing­unni um ástæður þess að ákveðið er að lækka vext­ina. 

Auglýsing

Horfur séu á hröðum hag­vexti í ár eins og í fyrra, og bæði árin séu umfram það sem spáð var í febr­ú­ar. Það skýrist einkum af meiri vexti í ferða­þjón­ustu en áður var búist við, og einnig segir pen­inga­stefnu­nefnd meiri slökun í aðhaldi opin­berra fjár­mála hafa áhrif. 

Spenna á vinnu­mark­aði og í þjóð­ar­bú­skapnum í heild hefur því auk­ist þrátt fyrir auk­inn inn­flutn­ing vinnu­afls og kröft­ugan fram­leiðni­vöxt. Á móti auk­inni spennu vegur hækkun gengis krón­unn­ar. Hún hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í aðlögun þjóð­ar­bús­ins að búhnykkjum sem rekja má til betri við­skipta­kjara og vaxtar ferða­þjón­ust­u.“

Verð­bólgan mæld­ist 1,9% í apríl en und­ir­liggj­andi verð­bólga virð­ist hins vegar heldur hafa minnkað und­an­farna mán­uði, að sögn pen­inga­stefnu­nefnd­ar. Geng­is­hækk­unin og lítil alþjóð­leg verð­bólga vega sem fyrr á móti verð­bólgu­þrýst­ingi af inn­lendum rótum og hefur bilið á milli verð­þró­unar inn­lendra þátta, einkum hús­næð­is­kostn­að­ar, og erlendra þátta auk­ist enn frekar frá síð­asta fundi nefnd­ar­inn­ar. „Tveir gagn­stæðir kraftar hafa áhrif á verð­bólgu­horf­ur. Spenna í þjóð­ar­bú­skapnum hefur reynst meiri en spáð var en á móti vegur hærra gengi krón­unn­ar. Verð­bólgu­horfur fyrir þetta og næsta ár hafa batnað en versnað þegar líður á spá­tím­ann.“

Nefndin segir að skýr merki um aukna spennu í þjóð­ar­bú­skapnum kalli á pen­inga­legt aðhald svo að tryggja megi verð­stöð­ug­leika til með­al­langs tíma. Raun­vextir bank­ans hafi hækkað lít­il­lega frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar og geng­is­hækkun krón­unnar feli einnig í sér aukið aðhald.

„Seðla­bank­inn hefur dregið úr inn­gripum á gjald­eyr­is­mark­aði í ljósi rúmrar forða­stöðu enda er geng­is­hækk­unin talin end­ur­spegla und­ir­liggj­andi efna­hags­þró­un. Seðla­bank­inn mun eftir sem áður grípa inn í á gjald­eyr­is­mark­aði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann telur til­efni til. Traust­ari kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við verð­bólgu­mark­miðið og hækkun gengis krón­unnar hafa gert pen­inga­stefnu­nefnd mögu­legt að ná lög­boðnu mark­miði um verð­stöð­ug­leika við lægra vaxta­stig en ella. Aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar á kom­andi miss­erum mun ráð­ast af fram­vindu efna­hags­mála og annarri hag­stjórn.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent