Fjárlaganefnd leggur til frestun á VSK-hækkun á ferðaþjónustu

Meirhluti fjárlaganefndar leggst gegn hækkun á virðisaukaskatti á ferðaþjónustuna.

Benedikt Jóhannesson
Auglýsing

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar leggur til að hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu verði frestað en í stað­inn verði álagn­ing komu­gjalda skoð­uð. Þá hvetur fjár­laga­nefnd til þess að kann­aðir verði kostir þess að eignir rík­is­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli verði seld­ar.

Þetta kemur fram á vef RÚV.

Ekki eru gerðar til­lögur um að heild­ar­tekjur eða útgjöld rík­is­sjóðs í áætl­un­inni breyt­ist, að því er segir í frétt RÚV, en þó er í athuga­semdum lagt til að fjár­munir verði færðir til. Meðal ann­ars vegna athuga­semda frá öðrum þing­nefnd­um.

Auglýsing

Ein veiga­mesta breyt­ingin í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni snýr að ferða­þjón­ust­unni en Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur kynnt að virð­is­auka­skattur verði hækk­aður úr neðra þrepi í 22.5 pró­sent hinn 1. júlí á næsta ári. Í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni var gef­inn 15 mán­aða fyr­ir­vari, en nú er útlit að ekki verði af þessu.

Bene­dikt skrif­aði ítar­lega grein á vef Kjarn­ans þar sem farið var yfir þessi mál. „Ferða­­þjón­usta hefur vaxið mikið á und­an­­förnum árum. Hún hefur á þró­un­­ar­­skeiði sínu notið þess að vera í lægra skatt­­þrepi virð­is­auka­skatts. Skatta­hag­ræði vegna þessa hefur verið metið um 16 millj­­arðar króna ef litið er á gist­ingu, fólks­­flutn­inga og afþr­ey­ingu, en auk þess milli fimm og sex millj­­arðar króna í veit­inga­­rekstri. Nú þegar greinin er orðin stærsta gjald­eyr­is­aflandi grein lands­ins og vex um tugi pró­­senta á hverju ári er eðli­­legt að virð­is­auka­skattur sé sá sami í grein­inni og í öðrum geir­um,“ sagði Bene­dikt meðal ann­ars.

Sam­an­dregið sagði hann að ástæðan fyrir hækkun á virð­is­auka­skatt­inum væri meðal ann­ars sú að ytri aðstæður köll­uðu ekki á að hún greinin fengi skatta­af­slátt. 

„Að öllu þessu sögðu eru helstu nið­­ur­­stöð­­urnar þess­­ar:  

1. Efna­hags­­legar aðstæður þjóð­­ar­­bús­ins og vöxtur ferða­­þjón­ust­unnar gera það saman að verkum að ekki er lengur ástæða fyrir skatta­­lega ívilnun til grein­­ar­inn­­ar.  

2. Grein­ingar benda til þess að áfram muni vöxtur ferða­­þjón­­ustu verða kröft­ug­­ur. 

3. Ein­fald­­ara skatt­­kerfi og færri und­an­þágur bæta skil­­virkni tekju­öfl­unar rík­­is­ins.  

4. Lækkun almenns þreps kemur neyt­endum og atvinn­u­líf­inu til góða,“ sagði Bene­dikt í loka­orðum greinar sinn­ar.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill horfa til þess að nýta heim­ildir í lögum og selja Kefla­vík­ur­flug­völl, til að fjár­magna sam­göngu­fram­kvæmdir og styrkja stöðu rík­is­sjóðs, að því er fram kom á vef RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent