Það veit einhver hver á Dekhill Advisors

Aðkoma Hauck & Aufhäuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum, rannsóknarskýrsla um þá aðkomu og eftirstandandi ósvaraðar spurningar eru viðfangsefni sjónvarpsþáttar Kjarnans í kvöld. Kjartan Bjarni Björgvinsson er gestur þáttarins.

Kjartan Bjarni Björgvinsson
Auglýsing

„Ég held að það sé öllum morg­un­ljóst að það er ein­hvers staðar fyrir hendi vit­neskja um hver eigi þetta félag. En stóra spurn­ingin er hvort sá eða sú það veit stíga fram og upp­lýsa það.“ Þetta segir Kjartan Bjarni Björg­vins­son, sem sat í nefnd sem rann­sak­aði aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­­sent hlut í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í jan­úar 2003. 

Félagið sem Kjartan talar um er Dek­hill Advis­ors Limited, sem fékk 2,9 millj­arða króna greidda árið 2006 vegna bak­samn­inga sem gerðir voru við kaup­in. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Kjarn­ans á Hring­braut, þar sem kaupin á Bún­að­ar­bank­anum og rann­sókn á þeim eru til umfjöll­un­ar. Þátt­ur­inn er frum­sýndur klukkan 21:30 í kvöld.

Auglýsing


Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­inn­ar­segir að allar líkur standi til þess að „Kaup­­þing sjálft eða aðilar því tengdir hafi verið raun­veru­­legir eig­endur Dek­hill Advis­ors eða notið þeirra fjár­­muna sem þangað runn­u“. Allir stjórn­endur og starfs­menn Kaup­þings sem komu að mál­inu hafa hins vegar neitað að hafa hagn­ast fjár­hags­lega á því í svörum sínum til nefnd­ar­inn­ar.

Kjartan segir að þetta sé ekki full­yrð­ing um hverjir eig­end­urnir séu, enda liggi að honum vit­andi ekki fyrir neinar skýrar og afdrátt­ar­lausar upp­lýs­ingar um hver eigi félagið né hverjir hafi notið hags­bóta af þeim fjár­munum sem þangað fóru. „ Það er kannski næsta verk­efni ykkar fjöl­miðla­manna og fleiri aðila úti í þessu sam­fé­lagi að upp­lýsa um það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent