Benedikt hefur ekki mótað sér afstöðu um sölu Keflavíkurflugvallar

Fjármála- og efnahagsráðherra segir enga fjárfesta hafa sett sig í samband við sig vegna áhuga á að kaupa Keflavíkurflugvöll.

7DM_0591_raw_2072.JPG
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að eng­inn fjár­fest­ir, hvorki inn­lendur né erlend­ur, hafi sett sig í sam­band við ráðu­neyti hans með það í huga að kaupa Kefla­vík­ur­flug­völl. Hann seg­ist sjálfur ekki hafa mótað sér afstöðu í mál­inu enn sem komið er. Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag.

Greint var frá því í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag að umræður um einka­væð­ingu Kefla­vík­ur­flug­vallar hafi leitt til auk­ins áhuga erlendra fjár­festa á fram­vindu máls­ins. Þar er hins vegar haft eftir Birni Óla Hauks­syni, for­stjóra Isa­via, að það sé ákvörðun rík­is­valds­ins hvort og þá hvernig völl­ur­inn yrði seld­ur.

Óli Hall­dórs­son, vara­þing­maður Vinstri grænna, spurði Bene­dikt út þennan áhuga fjár­festa á Kefla­vík­ur­flug­velli í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í morg­un. Bene­dikt sagði að eng­inn hafi sett sig í sam­band við ráðu­neyti sitt til að lýsa yfir áhuga á að kaupa flug­stöð­ina, en fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Isa­via, eig­anda og rekstr­ar­að­ila Kefla­vík­ur­flug­vall­ar.

Auglýsing

Bene­dikt sagði að hann hafi reynt að kynna sér málið að und­an­förnu, hvernig eign­ar­haldi flug­stöðva væri háttað erlendis og kom­ist að því að þar sé það oft­ast nær með þeim hætti að fleiri aðilar en einn eigi flug­stöðv­ar. Þar séu ríki eða sveit­ar­fé­lög oft­ast stærstu eig­end­urn­ir. Hann hafi hins vegar ekki mótað sér afstöðu til þess hvort selja eigi Kefla­vík­ur­flug­völl eða ekki, en hafi þó hlustað af áhuga á umræður um að virði Isa­via sé á bil­inu 100-200 millj­arðar króna. Það sé gott að vita af slíkum vara­sjóði.

Bene­dikt sagði enn fremur að sala Kefla­vík­ur­flug­vallar hafi ekki verið rædd í rík­is­stjórn. Hann hafi fyrst heyrt af henni þegar Jón Gunn­ars­son, ráð­herra sveit­ar­stjórn­ar- og sam­göngu­mála, hafi sagt frá því í sjón­varps­við­tali að vert væri að skoða hug­mynd­ina um að selja völl­inn.

Þann 19. maí lagði meiri­hluti fjár­laga­nefnd svo til að kann­aðir verði kostir þess að eignir rík­­is­ins á Kefla­vík­­­ur­flug­velli verði seld­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent