Skipti út héraðsdómara fyrir annan sem var skipaður sama dag

Jón Höskuldsson og Ásmundur Helgason voru skipaðir héraðsdómarar sama daginn, en Jóni var skipt út af dómaralista dómnefndar og Ásmundur settur inn á lista ráðherra. Jón segir enga ástæðu fyrir þessu í skýringum ráðherra.

Auglýsing
heradsdomur héraðsdómur dómstólar

Jón Hösk­ulds­son hér­aðs­dóm­ari segir Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra hafa farið á skjön við eigin rök­stuðn­ing og óskar eftir því að stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis víki frá til­lögu hennar varð­andi skipun dóm­ara við Lands­rétt. Hann var einn þeirra sem dóm­nefnd taldi meðal fimmtán hæf­ustu umsækj­end­anna um dóm­ara­emb­ætti, en Sig­ríður tók hann af þeim lista ásamt þremur öðr­um. Jón var met­inn hæf­ari en allir þeir fjórir hér­aðs­dóm­arar sem Sig­ríður gerir nú til­lögu um að verði gerðir að dóm­urum í Lands­rétt­i. 

Jón skrif­aði stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins and­mæla­bréf, sem birt er á vef­síðu Alþing­is. Þar bendir hann á að Sig­ríður hafi notað þann rök­stuðn­ing að reynsla dóm­ara hafi ekki fengið það vægi sem til­efni sé til og gert sé ráð fyrir í reglum um störf dóm­nefnd­ar. 

Þá segir Jón að hann sé „tek­inn út einn hér­aðs­dóm­ara án þess að finna megi ástæðu þessa í skýr­ingum ráð­herra.“ Hann hafi verið skip­aður hér­aðs­dóm­ari 15. maí 2010, fyrir sjö árum síð­an. „Meðal þeirra sem ráð­herra gerir til­lögu um er hér­aðs­dóm­ari sem skip­aður var sama dag og und­ir­rit­aður og hefur því gengt emb­ætti hér­aðs­dóm­ara nákvæm­lega jafn leng­i,“ skrifar Jón. Þar á hann við Ásmund Helga­son hér­aðs­dóm­ara, sem nefndin setti í 17. sæti í hæf­is­mati sínu, en Sig­ríður hefur nú gert til­lögu um að verði dóm­ari. 

Auglýsing

Þeir Jón og Ásmundur voru skip­aðir hér­aðs­dóm­arar sama dag, líkt og Jón segir í bréfi sínu. Dóm­nefndin hafði þó talið Ásmund aðeins hærri hvað dóm­ara­reynslu varðar vegna setu hans í Félags­dómi frá árinu 2014, og eins máls þar sem hann var ad hoc dóm­ari í Hæsta­rétti Íslands. Engu að síður taldi nefndin Jón heilt yfir hæf­ari en Ásmund – Jón var í 11. sæti hjá nefnd­inni og Ásmundur því 17. 

„Breyt­ing ráð­herra á nið­ur­stöðu dóm­nefndar er því öðrum þræði á skjön við eigin rök­stuðn­ing. Það leiðir hug­ann að því að önnur og ef til vill ólög­mæt sjón­ar­mið hafi ráðið mati ráð­herra á hæfi umsækj­enda. Í öllu falli er ljóst að skýr­ingar ráð­herra fara ekki saman við þá breyt­ingu sem að mér snýr að því er varðar jafn­langa reynslu af störfum dóm­ara en auk sjö ára reynslu sem hér­aðs­dóm­ari hef ég starfað í 14 ár við stjórn­sýslu­störf, 12 ár sem lög­mað­ur­.“ 

Þá telur Jón einnig aðfinnslu­vert að ráð­herra skuli gera breyt­ingu á þeim mats­þáttum sem fjallað er um í reglum um störf dóm­nefndar án þess að gefa umsækj­endum kost á að tjá sig um slíka grund­vall­ar­breyt­ingu á hæfn­is­mat­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent