Hækkun húsnæðisverðs og fjölgun ferðamanna ósjálfbær

Ísland er orðið vinsælla en landið þolir, sérstaklega þegar kemur að fjölgun ferðamanna. Húsnæðisverð er auk þess að vaxa of hratt. Þetta er niðurstaða greiningar Nordea, eins stærsta banka Norðurlanda.

Norræni bankinn Nordea er farinn að greina Íslands sem mögulegan fjárfestingakost.
Norræni bankinn Nordea er farinn að greina Íslands sem mögulegan fjárfestingakost.
Auglýsing

Íslenskt efna­hags­líf gengur mun betur en það hefur gert um langt skeið. Landið er hins vegar að verða vin­sælla en það á inn­stæðu fyr­ir. Hús­næð­is­verð er að hækka of hratt og ferða­mönnum fjölgar of hratt. Vöxtur hús­næð­is­verð og fjölgun ferða­manna er því ósjálf­bær til lengd­ar. Þetta er nið­ur­staða grein­ingar nor­ræna bank­ans Nor­dea, sem er nú far­inn að greina Ísland að nýju sem mögu­legan fjár­fest­inga­kost.

Grein­andi Nor­dea heim­sótti Ísland seinni hlut­ann í maí og birti nið­ur­stöðu sína eftir þá heim­sókn um síð­ustu mán­aða­mót. Hann fund­aði meðal ann­ars með Seðla­banka Íslands, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, blaða­manni og þremur stærstu bönkum lands­ins: Lands­bank­an­um, Íslands­banka og Arion banka.

Auglýsing

Rús­sí­ban­areiðin

Í grein­ing­unni segir að mynd­lík­ingin rús­sí­bani hafi verið notuð oftar en einu sinni þegar við­mæl­endur voru að lýsa íslensku efna­hags­lífi. Tveir vaxta­hvat­ar, hækkun hús­næð­is­verðs og fjölgun ferða­manna, séu ekki sjálf­bærir til lengd­ar. Hús­næð­is­verð hafi hækkað um 20 pró­sent á einu ári og fjöldi ferða­manna hafi tæp­lega fimm­fald­ast frá 2010.

Við­mæl­endur grein­anda Nor­dea gáfu nokkrar mis­mun­andi skýr­ingar á því að þeir töldu að ekki væri yfir­stand­andi hús­næð­is­bóla, þrátt fyrir þessar miklu hækk­an­ir. Bentu þeir meðal ann­ars á að skuld­setn­ing heim­ila væri enn mjög lág og aðgerðir væru fram undan til að draga úr umfram­eft­ir­spurn á mark­aðn­um, sem hefði keyrt upp verð­ið. Þá sögðu við­mæl­endur að fyr­ir­huguð hækkun á virð­is­auka­skatti á ferða­þjón­ustu myndi draga úr vexti ef stjórn­mála­menn myndu hafa kjark til að ráð­ast í hana í ljósi mik­illar and­stöðu innan grein­ar­inn­ar. Auk þess búast margir við því að draga muni skarpt úr fjölgun ferða­manna vegna styrk­ingar krón­unnar og vegna þess að helstu ferða­manna­staðir lands­ins eru orðnir ansi þétt­setn­ir.

Stöðu­leika­sjóður í umræð­unni

Í grein­ing­unni segir að Seðla­bank­inn sé fastur milli steins og sleggju. Hinn mikli vöxtur sem er í hag­kerf­inu krefst þess að meginvextir séu háir, en styrk­ing krón­unnar kallar á hinn bog­inn á lægri vexti. Grein­andi Nor­dea segir að Seðla­bank­inn virð­ist vera einn á báti með þá skoðun að styrk­ing krón­unnar sé rétt­læt­an­leg vegna und­ir­liggj­andi stöðu. Aðrir sem hann ræddi við virð­ast hafa þá skoðun að styrk­ing krónu sé komin að þeim mörkum að hún skaðar allar aðrar útflutn­ings­greinar nema ferða­þjón­ustu, og nú sé hún meira að segja orðin svo sterk að sá skaði nær til ferða­þjón­ust­unnar líka.

Í grein­ing­unni segir að við­mæl­endur hafi upp­lýst um að verið væri að ræða upp­setn­ingu á stöð­ug­leika­sjóð í anda olíu­sjóðs Norð­manna, sem ætlað væri sveiflu­jöfn­un­ar­hlut­verk. Ákvörðun um hvort af stofnun hans verði muni þó ekki liggja fyrir fyrr en í fyrsta lagi í árs­lok.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent