Stórum eiganda í VÍS gert að færa fjármögnun sína frá Kviku

Óskabein seldi og keypti aftur stóran hlut af bréfum sínum í VÍS í dag. Ástæðan er krafa um að félagið færði fjármögnun sína á bréfunum úr Kviku banka í ljósi þess að VÍS er virkur eigandi í bankanum.

vís
Auglýsing

Óska­bein ehf., einn stærsti eig­andi Vátrygg­inga­fé­lags Íslands (VÍS), hefur flutt fjár­mögnun sína á eign­ar­hlut sínum í trygg­ing­ar­fé­lag­inu frá Kviku banka til Arion banka. Þetta var gert vegna kröfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) um að fjár­mögn­unin yrði færð í ljósi þess að VÍS er nú stærsti eig­andi Kviku og fer með virkan eign­ar­hlut.

Til­kynnt var um sölu og kaup á stærstum hluta bréfa Óska­beins í VÍS til Kaup­hallar í dag. Alls er um að ræða 90 millj­ónir hluti, en alls á Óska­bein rúm­lega 135 millj­ónir hluti. Virði þeirra hluta sem voru seldir og keyptir aftur er rúmur millj­arður króna. Bæði kaupin og salan fóru fram klukkan 11:20 í dag.

Í athuga­semdum við sölu­til­kynn­ing­una segir að breyt­ing á „fjár­mögnun bréfa í eigu Óska­beins ehf. vegna virks eign­ar­hlutar VÍS í Kviku Banka. Sala bréfa til Arion, sam­hliða er gerður fram­virkur samn­ingur um kaup Óska­beins á bréf­un­um, sjá aðra til­kynn­ingu um fram­virk við­skipti send út á sama tíma.“

Í til­kynn­ingu vegna kaupa á sama magni bréfa segir að kaup­við­skiptin séu gerð með fram­virkum samn­ingi sem sé með gjald­daga eftir eitt ár, þann 8. júní 2018.

VÍS stærsti eig­andi Kviku

Tveir af stærstu hlut­höfum VÍS, hjónin Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Örn Þórð­ar­son ann­ars vegar og félag Sig­urðar Bolla­sonar og við­skipta­fé­laga hans hins veg­ar, keyptu 15 pró­sent hlut í fjár­fest­inga­bank­anum Kviku í lok árs 2016. Félög þeirra, K2B fjár­fest­ingar (sem á átta pró­sent í Kviku) og Grandier ehf. (sem á sjö pró­sent), eru nú á meðal stærstu eig­enda bank­ans. Grandier seldi sinn hlut í VÍS fyrir nokkrum dögum síð­an.

Auglýsing

Þann 5. jan­úar 2017, rúmum mán­uði eftir að þau kaup gengu í gegn, var til­kynnt um að VÍS hefði keypt 21,8 pró­sent hlut í Kviku og sé nú stærsti eig­andi bank­ans. Alls nemur heild­ar­eign­ar­hlutur félags­ins nú tæp­lega 25 pró­sent­um.

Einn stærsti eig­andi VÍS er félagið Óska­bein sem á 5,89 pró­sent hlut. Það félag er m.a. í eigu Andra Gunn­ars­son­ar, Fann­ars Ólafs­sonar og Gests Breið­fjörð Gests­son­ar. Þeir keyptu hlut­inn meðal ann­ars með lánum frá Kviku banka. Gestur situr í stjórn VÍS. Í ljósi þess að VÍS er nú orðið virkur eig­andi í Kviku, en þeir sem eiga yfir tíu pró­sent hlut í bönkum telj­ast  virkir eig­end­ur, var gerð krafa um að Óska­bein færði fjár­mögnun sína úr bank­an­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent