Tveir aðilar lýstu yfir áhuga við ráðuneytið um kaup á Keflavíkurflugvelli

Það var ekki rétt sem Benedikt Jóhannesson sagði á Alþingi í lok maí, að enginn fjárfestir hefði sett sig í samband við ráðuneyti hans með það í huga að kaupa Keflavíkurflugvöll. Tveir aðilar gerðu það.

Benedikt Jóhannesson
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn á Alþingi þann 31. maí síð­ast­lið­inn að eng­inn fjár­­­fest­ir, hvorki inn­­­lendur né erlend­­ur, hafi sett sig í sam­­band við ráðu­­neyti hans með það í huga að kaupa Kefla­vík­­­ur­flug­­völl.

Í Face­book-­færslu í dag opin­berar Bene­dikt að þetta sé ekki rétt. Félagið Inn­viða fjár­fest­ingar slhf. hafi verið í sam­bandi við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fyrr á þessu ári um aðkomu fyr­ir­tæk­is­ins að rekstri flug­stöðvar Leifs Eiríks­son­ar. Jafn­framt hefði fyr­ir­tækið átt í við­ræðum við fyrri rík­is­stjórn um þetta mál. Til við­bótar hafi Kvika banki komið með full­trúa Macqu­arie fjár­fest­inga­sjóðs­ins í ráðu­neytið á fund 5. apríl síð­ast­lið­inn. Full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins hafi sagt frá því að það hefði komið að ýmsum inn­viða­fjár­fest­ingum erlend­is, meðal ann­ars á flug­völl­um. Á fund­inum kom fram af hálfu ráðu­neyt­is­ins að ekki væri á dag­skrá að selja íslenska flug­velli. „Þó svo að þessir aðilar hafi ekki nefnt flug­stöð­ina sér­stak­lega verður að segja að þeir hafi sýnt Isa­via í heild áhuga, þó svo að meg­in­efni fund­ar­ins hafi verið kynn­ing á fyr­ir­tæk­in­u,“ segir Bene­dikt í stöðu­upp­færsl­unni. Hann bætir við að sama dag og fyr­ir­spurnin var borin upp á þingi, 31. maí, hafi Gylfi Ólafs­son, annar aðstoð­ar­manna Bene­dikts, átt annan fund með þessum aðilum um sama efni. „Um þetta vissi ég ekki þá, enda miklar annir á síð­ustu dögum þings­ins.“

Í frétt á Stund­inni er greint frá því að mið­ill­inn hafi spurt Bene­dikt um málið í gær. Bene­dikt hafi svarað með því að setja inn ofan­greindan pistil á Face­book um málið í morg­un. 



Bene­dikt segir að honum þyki „leitt að hafa ekki tekið nákvæmar til orða í svari mínu, en rétt hefði verið að segja að mér væri ekki kunn­ugt um að neinn hefði sýnt flug­stöð­inni sér­stak­lega áhuga, en ég hefði orðið var við áhuga á Isa­via í heild og haldið svo áfram með svarið eins og ég gerði. Þó að ég sé allur af vilja gerður veit ég ekki allt sem ger­ist innan ráðu­neyt­is­ins. Óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir bera nafn með rentu og yfir­leitt hef ég verið óhræddur við að svara því til þegar ég veit ekki nákvæmt svar, en í þetta sinn brást mér boga­list­in. Reyni að svara betur næst.“

Óli Hall­­dór­s­­son, vara­­þing­­maður Vinstri grænna, spurði Bene­dikt út þennan áhuga fjár­­­festa á Kefla­vík­­­ur­flug­velli í óund­ir­­búnum fyr­ir­­spurnum í lok maí. Bene­dikt sagði að eng­inn hafi sett sig í sam­­band við ráðu­­neyti sitt til að lýsa yfir áhuga á að kaupa flug­­­stöð­ina, en fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neytið fer með eign­­ar­hlut rík­­is­ins í Isa­via, eig­anda og rekstr­­ar­að­ila Kefla­vík­­­ur­flug­vall­­ar.

Auglýsing

Eftir þing­fund­inn hafði Ómar Örn Tryggva­son, fram­kvæmda­stjóri Inn­viða fjár­fest­inga slhf., sam­band við ráð­herr­ann og benti honum á að Inn­viðir fjár­fest­ingar slhf. hefðu verið í sam­bandi við ráðu­neytið fyrr á þessu ári um aðkomu fyr­ir­tæk­is­ins að rekstri flug­stöðvar Leifs Eiríks­son­ar. Jafn­framt hefði fyr­ir­tækið átt í við­ræðum við fyrri rík­is­stjórn um þetta mál. „Ég átti í fram­hald­inu fund með Ómari og Sig­ur­geiri Tryggva­syni síð­ast­lið­inn mánu­dag. Ég sagði þeim þá að í núver­andi rík­is­stjórn hefði ekki verið rætt með neinum hætti um slíka sölu, þó fjár­laga­nefnd hefði nefnt það í sínu áliti með fjár­mála­á­ætlun og sam­göngu­ráð­herra hefði jafn­framt nefnt það í við­tali við Stöð 2 í lok apr­íl. Sala væri ekki á dag­skrá eins og er. Ef það breytt­ist yrði það með sam­þykki Alþingis og ferlið yrði opið. Ég hefði ekki ætlað að gera lítið úr fyr­ir­tæk­inu eða áhuga þess, en ég hefði ekki vitað bet­ur,“ segir Bene­dikt enn fremur í Face­book-­færslu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent