Jón vill byrja að byggja flugstöð í Vatnsmýri á næsta ári

Samgöngu- og sveitastjórnarráðherra segir að miðstöð innanlandsflugs sé í Vatnsmýrinni. Hann ætlar að skipa nýjan starfshóp sem á að kanna það sama og Rögnunefndin, en hafa fulltrúa landsbyggðar innanborðs.

Jón Gunnarsson er samgönguráðherra.
Jón Gunnarsson er samgönguráðherra.
Auglýsing

Jón Gunn­ars­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, segir að í hans huga sé mið­stöð inn­an­lands­flugs í Vatns­mýri. Hann hyggst skipa starfs­hóp sem falið verður að meta flug­vall­ar­kosti fyrir inn­an­lands­flug og ætlar að hafa full­trúa lands­byggð­ar­innar í þeim hópi. Ráð­herr­ann von­ast til þess að hægt verði að hefja fram­kvæmdir við nýja flug­stöð í Vatns­mýri á næsta ári. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Hópur var skip­aður fyrir nokkrum árum síðan til að fara yfir fram­tíð inn­an­lands­flugs og hann skil­aði skýrslu 2015. Hann var undir stjórn Rögnu Árna­dóttur og nefndin hefur ætið verið kölluð Rögnu­nefnd­in. Nið­ur­staðan þeirrar nefndar var að Hvassa­hraun væri álit­leg­asti kost­ur­inn fyrir inn­an­lands­flug fram­tíð­ar. Und­an­farið hefur Morg­un­blaðið sagt fréttir af því að for­maður Svæð­is­skipu­lags Suð­ur­nesja telji Hvassa­hraun ekki henta undir flug­völl þar sem þar sé helsta vatns­vernd­ar­svæði Suð­ur­nesja. Icelandair Group hefur staðið fyrir próf­unum í Hvassa­hrauni til að kanna hversu vel svæðið hentar fyrir nýjan flug­völl. Þeim próf­unum er ekki lok­ið. Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelanda­ir, segir við Morg­un­blaðið að félagið viti af þessum sjón­ar­miðum en telji samt sem áður mögu­legt að byggja flug­völl í Hvassa­hrauni. Hann tekur það þó sér­stak­lega fram að Icelandair muni ekki byggja flug­völl­inn og ð það sé póli­tísk ákvörðun um hvort hann verði byggður þarna eða ekki.

Reykja­vík vill flug­völl­inn burt eftir 2022

Ekki hefur verið ein­hugur um hvort að mið­­stöð inn­­an­lands­flugs verði áfram í Vatns­­­mýr­inni í Reykja­vík eða verði færð ann­að. Reykja­vík­­­ur­­borg hefur lengi viljað að flug­­­völl­­ur­inn verði færður svo hægt sé að byggja í Vatns­­­mýr­inni og þétta þar með höf­uð­­borg­ina. Um sér að ræða verð­­mætasta bygg­ing­­ar­landið innan marka hennar sem sé auk þess afar mik­il­vægt fyrir þróun henn­­ar.

Auglýsing

Sam­­kvæmt sam­­göng­u­á­ætlun er gert ráð fyrir að flug­­­völl­­ur­inn verði þar sem hann er til 2022 en aðal­­­skipu­lag Reykja­vík­­­ur­­borgar gerir ráð fyrir að hann víki í áföngum eftir það ár. Í fyrra­­sumar komst Hæst­i­­réttur Íslands að þeirri nið­­ur­­stöðu að íslenska ríkið þurfi að standa við sam­komu­lag sitt við Reykja­vík­­­ur­­borg um loka norð­aust­­­ur/suð­vest­­­ur­-flug­braut­inni, sem stundum er kölluð neyð­­­ar­braut­in, á Reykja­vík­­­ur­flug­velli. 

Fá ekki hljóm­grunn hjá sam­starfs­flokkum

Nýjar yfir­lýs­ingar Jóns munu lík­ast til ekki hljóta mik­inn hljóm­grunn hjá sam­starfs­flokkum Sjálf­stæð­is­flokks í rík­is­stjórn, Bjartri fram­tíð og Við­reisn. Ráð­herrar Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar eru á þeirri skoðun að skipu­lags­­vald yfir Vatns­­­mýr­inni, og þar með Reykja­vík­­­ur­flug­velli, eigi að liggja hjá Reykja­vík­­­ur­­borg. Auk þess er Björt fram­tíð hluti af meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík­ur­borg sem hefur mjög skýra stefnu um að flug­völl­ur­inn eigi ekki að vera í Vatns­mýri til fram­tíð­ar.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar kom fram að rík­­is­­stjórnin muni „beita sér fyrir lausn á ára­tuga­­deilu um fram­­tíð Reykja­vík­­­ur­flug­vallar með því að stofna til for­m­­legra við­ræðna sam­­göng­u­yf­­ir­­valda, heil­brigð­is­yf­­ir­­valda, Reykja­vík­­­ur­­borg­­ar, ann­­arra sveit­­ar­­fé­laga og hags­muna­að­ila. Tekin verði ákvörðun um fyr­ir­liggj­andi kosti að und­an­­gengnu mati og inn­­viðir inn­­an­lands- og sjúkra­flugs þannig tryggðir til fram­­tíð­­ar.“

Þegar hafa komið upp deilur milli stjórn­ar­liða vegna fram­tíðar Reykja­vík­ur­flug­vallar á þessu kjör­tíma­bili. Það gerð­ist raunar sama dag og rík­is­stjórnin tók við. Þá sagði Jón Gunn­ars­son við Vísi að eng­inn önnur lausn væri í stöð­unni en að Reykja­vík­ur­flug­völlur yrði áfram í Vatns­mýr­inni. Dag­inn eftir end­ur­tók hann þessa skoðun og úti­lok­aði ekki inn­grip í skipu­lags­vald Reykja­vík­ur­borgar í mál­inu. Nokkrum dögum síðar steig Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fram að sagði að flug­völl­ur­inn ætti að vera áfram í Vatns­mýr­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent