Raunverð fasteigna komið yfir verðið í bólunni 2007

Fasteignaverð heldur áfram að hækka, og fór vísitala fasteignaverðs upp um 1,8 prósent.

7DM_9563_raw_2114.JPG
Auglýsing

Síð­ast­liðna þrjá mán­uði hækk­aði vísi­talan um 6,9%, síð­ast­liðna sex mán­uði hækk­aði hún um 13,1% og síð­ast­liðna tólf mán­uði hækk­aði hún um 23,5%, að því er fram kemur á vef Þjóð­skrár. Sé mið tekið af því, þá kostar íbúð sem keypt var á 30 millj­ónir fyrir ári síðan ríf­lega 37 millj­ónir nú.

Vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sýnir breyt­ingar á vegnu með­al­tali fer­metra­verðs. Íbúð­ar­hús­næði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjöl­býli eða sér­býli. Reiknað er með­al­fer­metra­verð fyrir 9 flokka íbúð­ar­hús­næð­is. Nið­ur­staðan er vegin með hlut­deild við­kom­andi flokks í heild­ar­verð­mæti á mark­aði miðað við und­an­gengna 24 mán­uði.

Árs­hækkun fast­eigna­verðs var lengi vel á bil­inu 8-10% en hefur verðið vel yfir 20% mark­inu síð­ustu þrjá mán­uði, að því er kemur fram í hag­sjá Lands­bank­ans.

Auglýsing

Verðið hefur rokið upp.

Þar segir enn fremur að verðið sé nú komið yfir það sem það var árið 2007. „Verð­bólga hefur verið lág og stöðug síð­ustu miss­eri og því hefur raun­verð fast­eigna hækkað mun meira en ella. Að und­an­skildum hús­næð­is­kostn­aði hefur ríkt verð­hjöðnun í hag­kerf­inu frá því um mitt ár 2016. Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis í maí­mán­uði var þannig um 2,6% lægri en í maí 2016, þannig að allar nafn­verðs­hækk­anir á hús­næði síð­asta árið koma nú fram sem meiri raun­verðs­hækkun sem nemur þeirri tölu. Raun­verð fast­eigna hefur þannig hækkað um u.þ.b. 26,8% á einu ári frá maí 2016 til maí 2017. Raun­verð fast­eigna komst hæst í októ­ber 2007 en féll síðan mikið eftir það. Nú í maí er raun­verðið komið 3,2% yfir hæstu stöðu á árinu 2007,“ segir í hag­sjánni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent