Lífeyrissjóðirnir halda áfram að lána meira til húsnæðiskaupa

Fólk horfir sífellt meira til lífeyrissjóða, þegar kemur að lánum til húsnæðiskaupa.

Fasteignir hús
Auglýsing

Ný út­lán líf­eyr­is­sjóða á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins námu tæp­um 53 millj­­örðum króna í 2.838 samn­ing­um, sam­an­­borið við rúm­an 31 millj­­arð í 1.987 samn­ing­um fyrstu fimm mán­uði síð­asta árs. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag

Nem­ur aukn­ing­in ríf­­lega 70% milli sam­an­b­­urð­ar­­­tíma­bila. Í maí síð­ast­liðnum lán­uðu sjóð­irn­ir 12,5 millj­­arða og er það næst­hæsta upp­­hæð sem runnið hef­ur frá sjóð­unum í ein­um mán­uði.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa að und­an­förnu boðið betri vaxta­kjörum á lánum heldur en bank­ar.

Auglýsing

Met var slegið í mars síð­ast­liðnum þegar þeir lán­uðu ríf­­lega 13,5 millj­­arða, að því er fram kem­ur í Morg­un­­blað­inu í dag.

Sam­kvæmt nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands, frá 6. júlí síð­ast­liðn­um, þá námu eignir líf­eyr­is­sjóða 3.633 millj­örðum króna í lok maí og höfðu því lækkað um 27 ma.kr. eða 0,7% frá síð­asta mán­uði. Þar af voru eignir sam­trygg­inga­deilda 3.281 millj­arðar og sér­eigna­deilda 352 millj­arð­ar. 

Í lok maí námu inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóða 2.872 millj­arð­ar. Þar af voru inn­lán í inn­lendum inn­láns­stofn­unum 120 millj­arðar og inn­lend útlán og mark­aðs­verð­bréf námu 2.618 millj­örðum króna. 

Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóða voru 761 millj­arðar í lok maí en það er 27 millj­arða lækkun frá apr­íl. Hlut­fall erlendra eigna hefur því farið lækk­ani, og nemur nú 20,9 pró­sent­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent