Vöxturinn heldur áfram – Búast má við 42 prósent fleiri ferðamönnum

Ef sama munstur verður á fjölda ferðamanna á þessu ári og í fyrra má búast við að 42 prósent fleiri ferðamönnum í ár en í fyrra.

Fjöldi ferðamanna mun aukast um 42 prósent á þessu ári miðað við árið í fyrra, ef sama þróun verður og í fyrra.
Fjöldi ferðamanna mun aukast um 42 prósent á þessu ári miðað við árið í fyrra, ef sama þróun verður og í fyrra.
Auglýsing

39 pró­sent fleiri ferða­menn sóttu Ísland heim á fyrri hluta þessa árs 2017 en höfðu sótt landið heim á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Ferða­mála­stofu sem birt var fyrir helgi.

Ferða­mála­stofa fram­kvæmir taln­ingu á fjölda ferð­manna sem heim­sækja Ísland og skiptir þeim tölum eftir mán­uð­um. Taln­ingin fer fram við brott­för í Leifs­stöð og er hugsuð sem við­bót­ar­upp­lýs­ingar við far­þega­tölur Isa­via til að geta greint fjölda ferða­manna eftir þjóð­ern­um. Nán­ari upp­lýs­ingar um taln­ing­ar­að­ferð­ina má finna hér.

Auglýsing

Und­an­farin 15 ár hafa fleiri ferða­menn heim­sótt Ísland á seinni helm­ingi árs­ins, þe. í júlí og fram að ára­mót­um. Árin 2002 til 2016 voru að jafn­aði 38,7 pró­sent heim­sókna til lands­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. 61,3 pró­sent heim­sóttu landið á seinni sex mán­uðum árs­ins að jafn­aði.

Með­al­tal hlut­falls­legrar skipt­ingu ferða­manna á fyrri og seinni helm­ingi árs­ins



Þessi taln­ing er ekki fölskva­laus og töl­urnar hafa verið gagn­rýndar fyrir að sýna ekki svart á hvítu hversu margir raun­veru­lega dvelja á Íslandi. Þeir sem fara um flug­stöð­ina í Kefla­vík eru taldir með, hvort sem þeir séu aðeins að milli­lenda hér á landi eða í heim­sókn.

Krist­ján Dan­í­els­son, for­stjóri Kynn­is­ferða, er einn þeirra sem hefur gagn­rýnt taln­ing­una.

Vöxt­ur­inn gríð­ar­legur milli ára

Eins og mikið hefur verið fjallað um á und­an­förnum miss­erum hefur fjölgun ferða­manna á Íslandi verið gríð­ar­leg und­an­farin ár. Á milli áranna 2015 og 2016 jókst fjöldi ferða­manna um 40 pró­sent, sam­kvæmt tölum Ferða­mála­stofu. Á milli áranna 2014 og 2015 hafði aukn­ingin numið 30,21 pró­senti.

Mæla má aukna aukn­ingu á milli ára síðan árið 2010, þegar fjöldi ferða­manna minnk­aði á milli ára, í kjöl­far efna­hags­hruns­ins hér á landi. Árin 2009 og 2010 fækk­aði ferða­mönnum sem hingað komu um á rúm­lega 1 pró­sent. Strax árið 2011 varð mikil aukn­ing, sem nam 17,8 pró­sent frá árinu áður.

Fjöldi ferða­manna fyrstu sex mán­uði árs­ins 2017 miðað við 2016



Það sem af er ári er útlit fyrir að fjöldi ferða­manna muni enn aukast milli ára. Alls heim­sóttu tæp­lega 1,8 millj­ónir ferða­manna Ísland á síð­asta ári.

Ef hlut­falls­legur fjöldi ferða­manna á fyrri og seinni helm­ingi árs­ins 2016 verður sá sami í ár má gera ráð fyrir að 2,5 millj­ónir ferða­manna heim­sæki landið í ár. Miðað við það, þá eykst fjöldi ferða­manna enn um 42 pró­sent á milli áranna 2016 og 2017.

Það verður í fyrsta sinn sem það hægist á aukn­ingu í fjölda ferða­manna síðan 2010.

Aukn­ing ferða­manna á milli ára síðan 2003 og áætlun fyrir árið 2017



Fjöldi erlendra gesta sem fara um Leifs­stöð 2002-2017



Amer­ík­önum fjölgar mest

Af þeim mark­aðs­svæðum sem greind eru í tölum Ferða­mála­stofu þá koma hingað fleiri frá Norð­ur­-Am­er­íku en af öðrum mark­aðs­svæð­um.

Sam­setn­ing ferða­manna á fyrri helm­ingi áranna 2013-2017 hefur þess vegna breyst tölu­vert. Árið 2013 var fimmt­ungur ferða­manna sem hingað komu á fyrri helm­ingi árs­ins frá Norð­ur­lönd­um, um það bil fimmt­ungur kom frá Bret­landi, fimmt­ungur frá Mið- og Suð­ur­-­Evr­ópu, fimmt­ungur frá Norð­ur­-Am­er­íku og restin ann­ars staðar frá.

Síðan þá hefur komum Amer­ík­ana fjölgað mest og munstrið allt annað í dag en fyrir fimm árum.

Sam­setn­ing ferða­manna eftir mark­aðs­svæðum á fyrri hluta áranna 2013 til 2017



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent