Sýna fram á ný mynstur á hlýnun jarðar

Jörðin gæti verið að hlýna hraðar en áður var talið, ef marka má nýja rannsókn við Harvard-háskóla.

Jörðin
Auglýsing

Að hluta til má útskýra áhuga­leysi almenn­ings og stjórn­valda á hlýnun jarðar með því að benda á mis­vísandi skila­boð vís­inda­manna um hversu hratt og hversu mikið jörðin mun hlýna. Sumir vís­inda­menn horfa á hlýn­un­ina í sögu­legu og jarð­sögu­legu sam­hengi og spá því fyrir um 1,5-3°C hlýnun ef koldí­oxíð í and­rúms­loft­inu tvö­fald­ast.

Aðra sögu segja hins vegar þeir sem nota reikni­lík­ön, þar sem hita­aukn­ingin er borin saman við aukn­ingu styrks á koldí­oxíði í and­rúms­lofti. Útfrá þeim upp­lýs­ingum er búið til líkan sem segir að hlýn­unin nemi 2-4,5°C verði tvö­földun á styrk koldí­oxíðs.

Sam­kvæmt rann­sókn sem unnin var við Harvard vantar báða hópa hluta af sög­unni til að segja rétt til um hlýnun jarð­ar. Það vill nefni­lega þannig til að jörðin hlýnar ekki alls staðar jafnt. Norð­ur­skaut jarðar hlýnar mun hraðar en sá hluti jarðar sem er sunnan við mið­baug. Ástæða þess er mis­dreif­ing hafs og lands.

Auglýsing

Þar sem land er til staðar verður meiri hlýnun á skömmum tíma, landið drekkur varma sól­ar­innar í sig meðan íshellan á suð­ur­hvelinu end­ur­kastar geislum sól­ar­innar í meira mæli. Svo til að byrja með hækkar hit­inn hraðar á norð­ur­hveli. Á meðan bygg­ist varm­inn hægt og bít­andi upp þar sem haf og ís eru als­ráð­andi og að lokum mun hlýn­unin skila sér í auknum sjáv­ar­hita.

Auk­inn sjáv­ar­hiti ýtir svo undir enn frek­ari hlýn­un. Til dæmis minnkar skýja­far yfir hlýrri sjó, svo sól­ar­geisl­arnir hafa greið­ari aðgang. Auk þess minnkar ísbreiðan sem býr til stærra svæði lands sem getur drukkið í sig varma sól­ar­geisl­anna.

Sam­kvæmt því sem birt­ist í grein Harvar­d-hóps­ins í Sci­ence Advances má því leiða líkur að því að hita­stigið hækki enn meira en talið hefur ver­ið, eða um allt að 6°C, verði tvö­földun á styrk koldí­oxíðs í and­rúms­lofti. Við­brögð jarð­ar­innar við hækk­andi hita­stigi sjávar muni nefni­lega leiða til auk­ins hraða á hlýnun jarð­ar.

Það er lík­lega orðið allt of seint fyrir okkur að snúa þess­ari þróun við, en það er alls ekki of seint að tak­marka skað­ann. Þess vegna skipta sátt­málar eins og Par­ís­ar­sam­komu­lagið svo miklu máli því sam­stíga eigum við miklu meiri von um að bjarga jörð­inni okk­ar.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvat­an­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent