Hryðjuverkaógnin sameinar, loftslagsmál skilja í sundur

Trump fagnar þjóðhátíðardegi Frakklands með Macron í París í dag. Þeir virðast vera orðnir mestu mátar.

Emmanuel Macron tók á móti Donald Trump í Frakklandi í gær. Trump fylgist með hátíðarhöldum í París á þjóðhátíðardegi Frakka í dag.
Emmanuel Macron tók á móti Donald Trump í Frakklandi í gær. Trump fylgist með hátíðarhöldum í París á þjóðhátíðardegi Frakka í dag.
Auglýsing

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, er í opin­berri heim­sókn í Frakk­landi þar sem hann fund­aði með nýkjörnum for­seta Frakk­lands, Emmanuel Macron, í gær. Don­ald og Mel­ania Trump munu fagna Bastillu-deg­in­um, þjóð­há­tíð­ar­degi Frakk­lands, í dag ásamt frönsku for­seta­hjón­un­um.

Á blaða­manna­fundi eftir tveggja klukku­stunda langan fund þeirra í Élysée-höll und­ir­strik­aði Macron ágrein­ing Frakk­lands og Banda­ríkj­anna í lofts­lags­málum en sagði ríkin ætla að vinna saman gegn hryðju­verkaógn­inni í heim­in­um.

Handaband leiðtoga Bandaríkjanna og Frakklands var ekki eins vandræðalegt og þegar þeir hittust fyrst í Belgíu, fyrr á þessu ári.

Trump neydd­ist til þess að eyða þó nokkrum tíma í að verja son sinn, Don­ald Trump yngri, vegna fundar hans með rúss­neskum lög­manni í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum í fyrra. Trump yngri leysti frá skjóð­unni á Twitter nýverið þar sem hann birti öll tölvu­póst­sam­skipti sín. Fjöl­miðlum vest­an­hafs þykja póst­arnir varpa nýju ljósi á sam­skipti kosn­inga­bar­áttu Trump við rúss­neska sendi­full­trúa.

Á blaða­manna­fund­inum í Frakk­landi gaf Banda­ríkja­for­seti í skyn að sér gæti enn snú­ist hugur varð­andi útgöngu Banda­ríkj­anna úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. „Eitt­hvað gæti gerst hvað varðar Par­ís­ar­sam­komu­lag­ið. Við sjáum hvað set­ur. Við munum tala um það á næstu miss­erum,“ sagði Trump áður en hann dró í land. „Ef það ger­ist þá verður það dásam­legt, ef það ger­ist ekki þá verður það allt í lagi lík­a.“

Auglýsing

Ánægður með her­sýn­ingu

Trump kom til Frakk­lands í gær, fimmtu­dag. Hans beið stór her­sýn­ing í her­stöð­inni í Les Invalides þar sem Macron og Trump tóku út hern­að­ar­mátt Frakk­lands.

Miðað við lýs­ingar breska dag­blaðs­ins The Guar­dian virt­ist þetta hafa kætt banda­ríska for­set­ann sem hefur sjálfur sagst vera mik­ill herkall. Trump klapp­aði Macron reglu­lega á bakið og tók ítrekað í hönd­ina á hon­um.

Macron virð­ist ætla að beita þess­ari aðferð í sam­skiptum sínum við leið­toga erlendra stór­velda; Und­ir­strika ríka sögu og mátt Frakk­lands með stæl. Vla­dimír Pútín fékk í það minnsta sömu með­ferð þegar hann heim­sótti Macron. Þessar sýn­ingar eru ekki síður handa íbúum Frakk­lands og Evr­ópu.

Það fór betur á með þessum nýkjörnu for­setum í Frakk­landi en í Belgíu fyrr á þessu ári þar sem stíft handa­band þeirra varð að umtals­efni. Trump leið greini­lega vel í sam­fylgd með Macron og bauð honum far í bryn­vörðum for­seta­bílnum sem kall­ast „The Beast“, eða Skepnan.

Trump var ekki aðeins ánægður með hern­að­ar­mátt Frakk­lands. Þegar Don­ald og Mel­ania fylgdu Emmanuel og Brigitte um sögu­fræga staði snéri Trump sér við á einum tíma­punkti og sagði við Brigitte: „Þú ert í svo góðu formi.“ „Dá­sam­leg“. Hann snéri sér þá að eig­in­manni hennar Emmanuel og sagði: „Hún er í svo góðu formi.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent