Lyfja áfram í eigu ríkisins

Lyfsölukeðjan Lyfja verður áfram í eigu íslenska ríkisins. Í það minnsta í bili.

Lyfja lyf drug drugs
Auglýsing

Ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að heim­ila ekki kaup Haga á Lyfju hf. er áfall fyrir smá­söluris­ann íslenska.

Með kaup­unum hefði félagið aukið breidd í rekstr­in­um, og verið betur í stakk búið til að mæta vax­andi sam­keppni, ekki sést eftir að Costco opn­aði vöru­hús sitt í maí síð­ast­liðn­um.

Costco hefur fengið ótrú­legar við­tökur hjá Íslend­ingum og íslenskum fyr­ir­tækj­um, en í það minnsta 70 þús­und aðild­ar­kort hafa verið seld hjá Costco til þessa, og fjölgar nýjum kort­höfum stöðugt. Costco er alþjóð­legur smá­sölurisi og nemur mark­aðsvirði félags­ins tæp­lega 80 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur meira en átt­földu heild­ar­virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins. 

Auglýsing

Ríkið fékk Lyfju í fangið

Íslenska ríkið eign­að­ist Lyfju en fyr­ir­tækið var hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­hafa Glitn­is, og fór Lind­ar­hvoll, dótt­ur­fé­lag rík­is­ins, með eign­ar­hald á félag­inu.

Lyfja hf. sam­anstendur af móð­ur­fé­lag­inu Lyfju hf. ásamt dótt­ur­fé­lög­unum Heilsu ehf. og Mengi ehf. Lyfja hf. rekur sam­tals 39 apó­tek, útibú og versl­an­ir, auk lyfja­skömmt­un­ar, um land allt undir merkjum Lyfju, Apó­teks­ins og Heilsu­húss­ins.  Heild­ar­velta Lyfju hf. var 9 millj­arðar kr. á árinu 2015.

Heild­ar­verð­mæti Lyfju hf. við gerð kaup­samn­ings er um 6,7 millj­arðar króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu um við­skipti á þeim tíma þegar gengið var frá þeim.  Verð­mat Haga hf. byggði á árs­reikn­ingum félags­ins und­an­farin ár og raun­tölum rekstrar fyrir fyrstu 9 mán­uði árs­ins 2016.

Íslenska ríkið er því nú með Lyfju enn á sínum snærum, og má búast við því að sölu­ferli á félag­inu fari aftur af stað innan ekki svo langs tíma.

Hagar segja í til­kynn­ingu til kaup­hall­ar, að félagið muni taka ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til sér­stakrar skoð­un­ar.

Hvað ger­ist með kaupin á Olís?

Til­kynnt var um kaup Haga á Olíu­verslun Íslands, Olís, ekki alls fyrir löngu, og var þá einnig fyr­ir­vari um sam­þykkt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Kaup­verð Olís var 9,1 millj­arður króna, og því um meira umfang við­skipta að ræða. Hugs­an­lega mun Sam­keppn­is­eft­ir­litið einnig hafna þeim kaup­um, en staða Haga á smá­sölu­mark­aði hefur verið skil­greind mark­aðs­ráð­andi, og því getur félagið ekki leyft sér hvað sem er. Búast má við nið­ur­stöðu í það mál undir lok þessa árs.

Mark­aðsvirði félags­ins er nú 45,6 millj­arðar króna og hefur fallið um 15 millj­arða skömmum tíma, eða frá því Costco opn­aði vöru­hús sitt. Rekstur félags­ins hefur þó verið stöð­ugur og góður um ára­bil, en eins og kunn­ugt er rekur félagið meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bónus og Hag­kaup.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent