Ísland úr leik á EM 2017

Ísland lék sinn annan leik á EM 2017 í knattspyrnu í Hollandi gegn Sviss í dag.

Sif Atladóttir í baráttunni við Vanessu Buerki í leiknum. Sif var frábær í leiknum og hljóp uppi hverja skyndisókn Sviss á eftir annari í lok leiksins.
Sif Atladóttir í baráttunni við Vanessu Buerki í leiknum. Sif var frábær í leiknum og hljóp uppi hverja skyndisókn Sviss á eftir annari í lok leiksins.
Auglýsing

Íslenska lands­liðið tap­aði 1-2 gegn Sviss í öðrum leik Íslands á Evr­ópu­meist­ara­móti kvenna í knatt­spyrnu í Hollandi. Ísland er með núll stig eftir tvo leiki. Ísland á einn leik eftir í riðla­keppn­inni, á móti Aust­ur­ríki.

Fann­dís Frið­riks­dóttir kom Íslandi yfir í fyrri hálf­leik með flottu marki eftir að hafa fengið frá­bæra send­ingu frá Dag­nýju Brynjars­dóttur inn fyrir vörn sviss­nesku leik­mann­anna.

Sviss jafn­aði fyrir hálf­leik með marki frá Lara Dic­ken­mann. Ramona Bach­mann skor­aði svo annað mark Sviss á 52. mín­útu leiks­ins eftir mis­tök í íslensku vörn­inni.

Seinni hálf­leik­ur­inn dróst á lang­inn vegna meiðsla sem Gaëlle Thal­mann, mark­vörður Sviss, hlaut eftir sam­stuð við Gunn­hildi Yrsu Jóns­dótt­ur. Þess vegna var 11 mín­útum bætt við leik­inn.

Auglýsing

Íslenska liðið átti í stök­ustu vand­ræðum með að halda aftur af sviss­nesku lands­liðs­kon­unum þegar leið á leik­inn. Stelp­urnar okkar áttu samt góða spretti en tókst ekki að koma bolt­anum oftar í net­ið.

Ísland þarf nú að vinna síð­asta leik sinn til þess að eiga mögu­leika á að kom­ast í úrslita­keppni móts­ins auk þess sem að stelp­urnar okkar þurfa að treysta á úrslit í öðrum leikjum í riðl­in­um. Frakkar þurfa að vinna alla sína leiki, en næstu mótherjar þeirra eru Aust­ur­ríki í kvöld.

Upp­fært að kvöldi laug­ar­dags 22. júlí – Ísland kemst ekki áfram í úrslita­keppni móts­ins því Aust­ur­ríki og Frakk­land gerðu 1-1 jafn­tefli í leik sín­um. Þrjú stig í síð­asta leiknum munu þess vegna ekki duga til þess að ná öðru sæti í riðl­in­um.

Gunnhildur Jónsdóttir og Sigríður Garðarsdóttir berjast við Ramonu Bachmann í leiknum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent