Spáir því að flokkurinn snúist gegn Trump

Leiðtogi demókrata segist trúa því að þingmenn repúblikana muni ekki sitja hjá ef Trump náðar sjálfan sig eða fjölskyldu sína.

Chuck Schumer er leiðtogi demókrata á bandaríska þinginu.
Chuck Schumer er leiðtogi demókrata á bandaríska þinginu.
Auglýsing

Chuck Schumer, leið­togi demókrata á banda­ríska þing­inu, telur ólík­legt að þing­menn Repúblikana­flokks­ins muni leyfa Don­ald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, að reka Robert Mueller eða náða sjálfan sig af ákærum á hendur sér.

Mueller var ráð­inn til þess að rann­saka meint áhrif Rússa á banda­rísku kosn­ing­arnar á síð­asta ári og sam­skipti kosn­inga­bar­áttu Trumps við rúss­neska ráða­menn og umboðs­menn þeirra. Fyrir vikið hefur Mueller sætt gagn­rýni for­set­ans sem segir sög­urnar allar upp­spuna frá A-Ö, jafn­vel þótt sýnt hafi verið fram á ann­að.

Frá þessu er greint á vef Bloomberg.

Schumer seg­ist ekki geta ímyndað sér að kollegar hans í meiri­hluta repúblikana, þar með talið Mitch McConn­ell leið­toga þing­flokks­ins og Paul Ryan þing­for­seta, muni láta afskipti Trumps óhreyfð.

Auglýsing

„Það yrðu ein­hver mestu brot á reglum rétt­ar­rík­is­ins, á lýð­ræð­is­hefðum og því sem lýð­ræðið okkar snýst um,“ sagði Schumer í sjón­varps­við­tali á banda­rísku stöð­inni ABC í gær. „Slíkt mundi valda nátt­úru­ham­förum í Was­hington.“

Don­ald Trump gaf í skyn, í við­tali við banda­ríska dag­blaðið The New York Times í síð­ustu viku, að búið væri að draga rauða línu utan um meint leyni­makk með Rússum, sem Mueller mætti ekki stíga yfir. Á laug­ar­dag var for­set­anum svo tíð­rætt á Twitter um náð­un­ar­vald sitt.



Trump getur ekki rekið Robert Mueller enda starfar sá í umboði Rod Ros­en­stein, aðstoð­ar­dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Ros­en­stein gegnir skyldum dóms­mála­ráð­herra vegna þess að dóms­mála­ráð­herr­ann Jeff Sessions er sjálfur til rann­sóknar í þessu máli.

Vara Trump við að náða sig eða fjöl­skyldu sína

Nýr sam­skipta­stjóri Don­alds Trump, Ant­hony Scara­mucci, hóf störf á föstu­dag­inn. Hann hefur sagt fjöl­miðla ein­beita sér of mikið að hugs­an­legum sam­skiptum Trumps við Rússa. Hann sagði í sam­tali á Fox-­sjón­varps­stöð­inni að for­set­inn hafi rætt um náð­un­ar­vald sitt á skrif­stofu sinni í Hvíta hús­inu í síð­ustu viku. Scara­mucci segir for­set­ann samt ekki þurfa að nota það.

„Það er eng­inn í kringum hann sem þarf á náðun að halda,“ sagði Scara­mucci. „Hann var bara að tala um náð­un­ar­valdið almennt.“

Scara­mucci sagði einnig í þætti á CNN-sjón­varp­stöð­inni að for­set­inn væri ekki sann­færður um að Rússar hafi haft áhrif á kosn­ing­arn­ar, jafn­vel þó leyni­þjón­usta og lög­reglu­yf­ir­völd telji að það hafi raun­veru­lega verið þannig. „Hann sagði mér: Hey, þú veist, þetta er kannski gerðu þeir þetta, kannski gerðu þeir þetta ekki,“ segir Scara­mucci um orð for­set­ans.

Öld­unga­deild­ar­þing­maður repúblikana, Rand Paul, telur allar líkur á að Trump geti náðað sjálfan sig en segir það vera vonda hug­mynd. „Ég mundi vara hvern sem er í hinum póli­tíska heimi við að náða sjálfan sig eða fjöl­skyldu­með­limi sína.“

Don­ald Trump yngri, sonur for­set­ans, hefur sjálfur við­ur­kennt að hafa átt í sam­skiptum við Rússa í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í fyrra. Hann deildi tölvu­póst­sam­skiptum sínum um fund með rúss­neskum lög­manni sem sagð­ist eiga skemm­andi upp­lýs­ingar um Hill­ary Clint­on, for­seta­fram­bjóð­anda demókrata, á Twitt­er.

Enn hefur ekki verið gefin út ákæra í þessu máli en lög­spek­ingar telja fund­inn geta hafa verið í and­stöðu við lög.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent