Íslenskur skipstjóri í haldi í Namibíu

Skipstjóri sem starfaði árum saman hjá Samherja er í gæsluvarðhaldi í Namibíu eftir að hafa verið handtekinn fyrir ólöglegar veiðar.

ARngrímur Brynjólfsson
Auglýsing

Arn­grímur Brynj­ólfs­son, 67 ára íslenskur skip­stjóri, er í haldi yfir­valda í Namibíu fyrir að hafa stundað ólög­legar veiðar í land­helgi lands­ins. 

Arn­grímur var leiddur fyrir dóm­ara í gær í Wal­vis Bay sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann þyrfti að vera áfram í gæslu­varð­haldi þangað til að 100 þús­und dala trygg­ing yrði greidd fyrir hann, svo Arn­grímur gæti verið frjáls ferða sinna á meðan að beðið er eftir því að málið hljóti dóms­með­ferð. Hann þurfti auk þess að afhenda vega­bréfið sitt til namibískra yfir­valda.

Arn­grímur starf­aði um ára­bil fyrir Sam­herja en í frétt Namibian Broa­dcasting Cor­poration (NBC) af mál­inu kom ekki fram hvar hann starfar nú, eða hvort hann starfi enn fyrir Sam­herja. Í Við­skipta­blað­inu í dag kemur þó fram, í við­tali við Björgólf Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóra Sam­herja, að fyr­ir­tækið sé enn við veiðar í Namib­íu. Björgólfur stað­festi svo í sam­tali við mbl.issíð­degis að Arn­grímur sé skipt­stjóri á Heina­ste, verk­smiðju­tog­ara sem Sam­herji gerir út í Namib­íu. Þar sagði Björgólfur þó að Arn­grímur væri í far­banni, ekki í gæslu­varð­hald­i. 

Auk Arn­gríms er rúss­neskur skip­stjóri, Iurri Fest­i­son, í haldi yfir­valda í Namibíu fyrir ólög­legar veiðar af sama tog­i. 

Á þriðju­dag í síð­ustu viku opin­ber­uðu Kveikur og Stundin hvernig við­skipta­hættir Sam­herja í Afr­íku, nánar til­tekið í Namib­íu, hefðu verið á síð­ustu árum á meðan að fyr­ir­tækið náði undir sig mjög verð­mætum hrossa­makríl­skvóta í land­inu. Það var gert með mútu­greiðslum til tveggja ráð­herra í land­inu og ann­arra manna úr þeirra nán­asta hring. 

Auglýsing
Þær námu 1,4 millj­arði króna hið minnsta og hófust með því að reiðufé var afhent í íþrótta­töskum en tóku svo á sig fag­legri mynd og fóru fram í gegnum milli­færslur á reikn­inga í Dúbaí. 

Opin­ber­unin byggði ann­ars vegar á tug­þús­undum skjala og tölvu­pósta sem sýndu við­skipta­hætt­ina svart á hvítu, og hins vegar á frá­sögn Jóhann­esar Stef­áns­son­ar, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóra Sam­herja í Namib­íu, sem ját­aði á sig fjöl­mörg lög­brot og sagð­ist hafa framið þau að und­ir­lagi Þor­steins Más og Aðal­steins Helga­son­ar, sem var lengi yfir útgerð Sam­herja í Afr­ík­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent