Ásmundur Friðriksson: Tjáningarfrelsi á Íslandi aðeins fyrir útvalda

asmundur.jpg
Auglýsing

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að þeir sem vekja athygli á hætt­unni sem steðji að nágranna­ríkjum Íslands séu „skotnir niður og ataðir auri í sam­fé­lags­um­ræð­unni“ á Íslandi.

Ásmundur gerði hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn um helg­ina að umtals­efni á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins. Hann sagði að með morð­unum hefði „gildum frelsis og laga“ verið mót­mælt. „Nú lýsa trú­bræður morð­ingj­ans yfir stuðn­ingi við hann. Í nágranna­löndum okkar er opin umræða um þá hættu sem steðjar að hinum frjálsa heimi og þjóð­fé­lögum vegna fjölg­unar á árásum ein­stak­linga og hvers konar öfga­hópa. Hér á landi á engin slík umræða sér stað og spurn­ingin hvað við ætlum lengi að skila auðu í þeirri umræðu um öryggi íbú­anna.“

Ásmundur sagði að á Íslandi hefð­ust menn öðru­vísi að. „Þeir sem vekja athygli á hætt­unni sem steðjar að nágrönnum okkar eru skotnir niður og ataðir auri í sam­fé­lags­um­ræð­unni sem aldrei kemst á það stig að rætt sé um mál­efn­ið.“

Auglýsing

Hann sagði tján­ing­ar­frelsið vera fótum troðið og að það virð­ist oft á tíðum aðeins vera fyrir útvalda. Hann fagn­aði því að Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra hefði hafið umræðu um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ild­ir. „Tökum umræð­una um þá ógn sem steðjar að í nágranna­löndum okk­ar, en við getum ekki tekið þá áhættu að hún ber­ist ekki hing­að,“ sagði Ásmundur að lok­um.

Um miðjan jan­úar spurði Ásmundur að því á Face­book síðu sinni hvort bak­grunnur múslima á Íslandi hafi verið kann­að­ur, og hvort ein­hverjir þeirra hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða barist í löndum þar sem „óöld ríkir meðal múslima.“ Hann sagð­ist í kjöl­farið vera að vekja umræðu um þessi mál. „Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af því að hér leyn­ist slíkt fólk. Ég hef ekki hug­mynd um það. Mér finnst að við eigum að taka umræð­una um það. Hvað við viljum gera og hvernig við viljum standa að þessu,“ sagði hann í við­tali við Vísi.

Hann var í kjöl­farið harð­lega gagn­rýndur bæði innan flokks og utan.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None