Frumvarp um breytingar á stjórnarskrá fer til Alþingis á næstu vikum

14097534298_f246440b68_z.jpg
Auglýsing

Stjórn­ar­skrár­nefnd stefnir að því að skila skýrslu í formi frum­varps til Alþingis á allra næstu vik­um. Frum­varpið mun snú­ast um ferns konar breyt­ingar á stjórn­ar­skránni: þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur á grund­velli und­ir­skrifta, fram­sal valda­heim­ilda í þágu alþjóða­sam­vinnu, auð­lindir og umhverf­is­vernd. Þetta stað­festir Páll Þór­halls­son, for­maður nefnd­ar­inn­ar, í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir Páll einnig að það þurfi að finna ýmsar mála­miðl­anir ef tíma­frest­ur­inn eigi að ganga upp. „Þó eru allir með­vit­aðir um að ef nýta eigi bráða­birgða­á­kvæði um breyt­ingar á stjórn­ar­skránni og halda atkvæða­greiðslu um þær sam­hliða for­seta­kosn­ing­um, þá fer tím­inn brátt að renna frá okk­ur[...]Þetta þarf að afgreið­ast á Alþingi fyrir jól og þingið þarf að minnsta kosti nokkrar vikur til að ræða frum­varp­ið. Þess vegna höfum við lagt allt kapp á að skila þessu af okkur í sept­em­ber svo að hægt verði að leggja fram frum­varpið um og upp úr næstu mán­aða­mót­u­m.“

Hægt verður að kjósa um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sam­hliða for­seta­kosn­ing­unum á næsta ári vegna þess að í lok síð­asta kjör­tíma­bils var sam­þykkt stjórn­laga­breyt­ing sem gerir breyt­ingar á stjórn­ar­skránni á grund­velli þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu mögu­legar innan þessa kjör­tíma­bils.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra skip­aði stjórn­ar­skrár­nefnd í nóv­em­ber 2013. Hlut­verk hennar var að vinna ákveðnar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá í kjöl­far þess að frum­varp stjórn­laga­ráðs náði ekki í gegn á síð­asta kjör­tíma­bili.

Stórar til­lögur stjórn­ar­laga­ráðs ekki til umræðu



Á síð­asta kjör­tíma­bili lagði stjórn­laga­ráð, sem kosið var til af þjóð­inni, fram frum­varp um ­miklar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá íslenska lýð­veld­is­ins. Frum­varpið var lagt fram árið 2011. Kosið var um til­lögur ráðs­ins haustið 2012 þar sem tveir af hverjum þremur sem tók þátt í kosn­ing­unum sagð­ist vilja að til­lögur ráðs­ins yrðu lagðar til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá. Í til­lög­unum var meðal ann­ars að finna ákvæði um að auð­lindir yrðu þjóð­ar­eign og að til­tekið hlut­fall kosn­inga­bærra manna geti kraf­ist þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, líkt og verður að öllum lík­indum i frum­varpi stjórn­ar­skrár­nefnd­ar.

Þar voru einnig til­lögur um stór­tækar breyt­ingar á íslenska kosn­inga­kerf­inu þar sem lagt var til að heim­ila aukið per­sónu­kjör og að atkvæði lands­manna myndu öll gilda jafn mik­ið, en mikið ósam­ræmi er í því vægi á milli lands­hluta í dag. Báðar til­lög­urnar voru sam­þykktar með yfir­gnæf­andi meiri­hluta í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í októ­ber 2012. Þær eru hins vegar ekki sjá­an­legar í vinnu stjórn­ar­skrár­nefnd­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None