Guðni Ágústsson segir Sigurð Inga flokksbróður sinn hafa brugðist sjálfum sér

Guðni-Ágústsson.jpg
Auglýsing

Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins land­bún­að­ar­ráð­herra til margra ára, gagn­rýnir flokks­bróður sinn Sig­urð Inga Jóhanns­son, núver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Ástæðan er nýr samn­ingur milli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með land­bún­að­ar­vör­ur.

Samn­ing­arnir við ESB fela í sér að Ísland fellir niður tolla á yfir 340 nýjum toll­skrár­núm­erum og lækkar tolla á yfir 20 öðrum. Auk þess er samið um að báðir aðilar auki veru­lega toll­frjálsa inn­flutn­ings­kvóta m.a. fyrir ýmsar kjöt­teg­undir og osta, sem munu koma til fram­kvæmda á til­teknum aðlög­un­ar­tíma. Lækkun vöru­verðs vegna samn­ing­anna getur numið tugum pró­senta.

Guðni segir í grein sinni að stjórn­mála­menn séu "blá­eygir og hræddir að ganga gegn síbylj­unni í fjöl­miðlum og takast ekki á við áróð­ur­s­öfl sem sjá inn­flutn­ing alltaf í hill­ingum og gera grín að allri umræðu um að sjúk­dómar geti borist með inn­fluttu kjöti, hvað þá lif­andi dýrum".

Auglýsing

Hann segir það síðan hafa komið sem þrumu úr heið­skýru lofti þegar Sig­urður Ingi gerði nýja tolla­samn­ing­inn við Evr­ópu­sam­bandið og að við­brögð við gerð hans hafi bæði verið fálm­kennd og metn­að­ar­laus. Vísar hann máli sínu til stuðn­ings í að varn­ar­orð Mar­grétar Guðna­dóttur pró­fess­ors um áhætt­una af inn­flutn­ingi frá sam­band­inu vegna flóru sjúk­dóma sem glímt er við innan þess.

Hver læddi þess­ari flugu í munn ráð­herr­ans?



Í milli­fyr­ir­sögn segir Guðni að ráð­herr­ann (Sig­urður Ingi) hafi brugð­ist sjálfum sér. Guðni vitnar síðan í við­tal við Sig­urð Inga frá því í sumar þar sem hann sagði að vænt­an­lega myndi samn­ing­ur­inn þýða aukn­ingu á útflutn­ingi og inn­flutn­ingi á lamba­kjöti.

Að mati Guðna er með þessu verið að "of­fra" lamba­kjöts­mark­aðnum og auka áhætt­una hvað sauð­féð varð­ar. "Nóg hefur nú sauð­kindin mátt þola vegna sjúk­dóma sem komu með lif­andi og dauðum sauð­kindum til lands­ins. Ekki hvarflar að mér að Sig­urði Inga Jóhanns­syni hafi dottið þetta í hug sjálfum og tæp­lega for­ystu­mönnum bænda, en hver læddi þess­ari flugu í munn ráð­herr­ans, var það bara vind­ur­inn eða "kerl­ing" kæru­leys­is­ins? Sig­urður Ingi er nefni­lega best mennt­aði land­bún­að­ar­ráð­herra fyrr og síðar til að takast á við þessa umræðu heima og erlend­is. Hann er dýra­lækn­ir, þekkir sjúk­dóma­sög­una, veit og þekkir afrek háskól­ans á Rann­sókn­ar­stöð­inni á Keld­um. Hann er sá sem hefur nægja þekk­ingu til að segja "nei," við rík­is­stjórn­ar­borðið við samn­inga­menn­ina í ESB og getur sagt frá sér­stöðu Íslands, hrein­leika jarð­ar­innar og að búfjár­sjúk­dómar séu varla til á Íslandi. Að vegna ein­angr­unar lands­ins og búpen­ings­ins geti sýk­ingar farið eins og sinu­eldur um og strá­drepið eða sýkt blessuð dýr­in. Hvar voru bænd­urn­ir, þeir þögðu þunnu hljóði, eða stöðv­uðu þeir ráð­herr­ann og emb­ætt­is­menn­ina?"

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None