Hreiðar Már, Skúli og Magnús sakfelldir í Marple-málinu - Guðný sýknuð

hreidar.jpg
Auglýsing

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings,  Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg og Skúli Þor­valds­son fjár­festir voru í dag sak­felldir í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í Marp­le-­mál­inu svo­kall­aða. Hreiðar Már og Skúli hlutu sex mán­aða dóma en Magnús var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var sýknuð af ákæru í mál­inu. RÚV greinir frá.

Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli var ákærður fyrir hylm­ing­u. ­Mál­ið, eins og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara lagði það upp, snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Hold­ing, í eigu Skúla, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki.

Alls hef­ur emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara ákært þá Hreiðar Má og Magnús fjórum sinn­um. Hreiðar Már hefur nú þrí­vegis verið dæmdur sekur í málum gegn hon­um, þótt tvö þeirra mála eigi vænt­an­lega enn eftir að fara fyrir Hæsta­rétt. Magnús hlaut dóm í Al Than­i-­mál­inu en var sýkn­aður í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu tengt Kaup­þingi fyrr á þessu ári. Báðir afplána þeir nú langa fang­els­is­dóma á Kvía­bryggju.

Auglýsing

Fóru fram á að með­dóm­ari myndi víkja



Fyrr í þess­ari viku fór Hreiðar Már fram á að Ásgeir Brynjar Torfa­son, með­dóm­ari í mál­in­u, ­meðal ann­ars á þeim for­sendum að hann situr í stjórn sam­tak­anna Gagn­sæis, sem hafa það yfir­lýsta mark­mið að berj­ast gegn spill­ingu í öllum grunn­stoðum sam­fé­lags­ins. Auk þess vor­u ýmis ummæli Ásgeirs Brynjars í þjóð­mála­um­ræðu und­an­far­inna ára sem og grein­ar­skrif hans sögð draga úr hlut­leysi hans sem dóm­ara. Kjarn­inn greindi frá þessu á mánu­dag.

Vísir greindi einnig frá mál­inu og því að meðal þess sem Hreiðar not­aði sem rök­stuðn­ing eru ummæli Ás­geirs í mynd­bands­bloggi hjá Teiti Atla­syni, nafn­laus grein á bloggi Egils Helga­sonar sem Hreiðar telur að Ásgeir hafi skrifað og færslur á Face­book sem hann hefur látið sér líka við.

Þeirri kröfu var hafn­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None