Íslandspóstur kvartar - Bréfanotkun stöðugt að minnka

letters.jpg
Auglýsing

Íslands­póstur segir í frétta­til­kynn­ingu að þróun bréfa­magns hér á landi, hafi nú veru­lega nei­kvæð áhrif á afkomu bréfa­dreif­ingar Pósts­ins og að gera megi ráð fyrir að „tekjur af bréfa­dreif­ingu hefðu verið um 1.800 millj­ónum króna á árinu 2014 ef verð hefði breyst í sam­ræmi við vísi­tölu neyslu­verðs og magn hefði hald­ist óbreytt frá árinu 2007.“

Til­kynn­ing­in, sem send var til fjöl­miðla í dag, er með fyr­ir­sögn um að fækkun bréfa, sem sagt minni notkun fólks á bréfa­send­inum til sam­skipta, hafi haft „al­var­leg áhrif á afkomu Íslands­póst­s“.

Magn­minnkun á bréfum sem Íslands­póstur hefur einka­rétt á, það er á bréfum undir 50 grömm­um, var 8,1 pró­sent í fyrra. Bréfa­notk­unin hefur minnkað úr 50 millj­ónum árið 2007 í 27,5 millj­ónir í fyrra, eða um 45 pró­sent, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Gera má ráð fyrir að tækni­þróun eigi þarna mik­inn hlut að máli, enda bréfa­send­ingar ekki eins og mikið not­aðar til sam­skipta og upp­lýs­inga­skipta nú eins og á árum áður, þegar inter­netið hafði ekki umbylt sam­skipta­mögu­leik­um.

„Spá Íslands­pósts gerir ráð fyrir enn frek­ari magn­minnkun á næstu árum en gert er ráð fyrir að hún geti orðið allt að 30% til árs­loka 2019,“ segir í til­kynn­ingu Íslands­pósts.

Þróun bréfa­magns hefur haft veru­leg áhrif á afkomu bréfa­dreif­ingar Pósts­ins en gera má ráð fyrir að tekjur af bréfa­dreif­ingu hefðu verið um 1.800 mkr. hærri á árinu 2014 ef verð hefði breyst í sam­ræmi við vísi­tölu neyslu­verðs og magn hefði hald­ist óbreytt frá árinu 2007. Þegar horft er til árs­ins 2019 má gera ráð fyrir að tekjur verði um 800 millj­ónum lægri en árið 2014.

Í til­kynn­ing­unni kvartar Íslands­póstur enn fremur undan því að kvaðir um póst­dreif­ingu séu enn þær sömu og áður, og dreifi­kerfið haldi áfram að stækka, með fleiri póst­lúg­um.

„Burð­ar­gjöld eru lægst á Íslandi sam­an­borið við Norð­ur­lönd­in, Bret­land og Þýska­land sam­kvæmt nýút­kominni skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar í Sví­þjóð en á sama tíma eru hlut­falls­lega fæst bréf á íbúa hér á landi. Íslands­póstur hefur um nokk­urt skeið gert til­lögur til stjórn­valda um breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi bréfa­dreif­ingar til þess að mæta auknum kostn­aði og minnk­andi tekjum af bréf­um, en ekki er búið að fall­ast á þær breyt­ingar enn sem komið er,“ segir í frétta­til­kynn­ingu Íslands­pósts.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None