Ráðherrabreytingar koma vel til greina en Bjarni og Sigmundur Davíð skipta ekki um stól

Sigmundur Illugi Gunnar Bragi
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra tekur undir með Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að það komi vel til greina að stokka upp í rík­is­stjórn Íslands. Hann tekur þó sér­stak­lega fram að engar breyt­ingar verði gerðar á emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Sig­mundur Davíð og Bjarni eru því ekki að fara að skipta um sæti. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Þar er haft eftir Sig­mundi Davíð að mögu­legar breyt­ingar hafi verið ræddar þegar stjórn­in var mynduð og að hann og Bjarni hafi nokkrum sinnum rætt síðan þá að það gæti verið æski­legt á ein­hverjum tíma­punkti að fara í ein­hvers­konar upp­stokk­un. "Það má þó ekki bíða of lengi með það ef það á að verða því að það tekur ráð­herra alltaf ein­hvern tíma að kom­ast inn í nýjan mála­flokk. Það hefur hins vegar engin ákvörðun verið tekin um slíkt og engar ákveðnar engar til­teknar breyt­ingar verið ræddar hvað þetta varð­ar.“

Sig­mundur Davíð tekur það hins vegar fram að allir ráð­herra hafi staðið sig vel í sínum mála­flokk­um. Óánægja sé því ekki ástæðan fyrir því að ráð­ist verði í breyt­ingar heldur að menn vilji fá nýtt sjón­ar­horn í ráðu­neyt­in.

Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt að það komi vel til greina að stokka upp í rík­is­stjórn­inni á næsta hálfa árinu og gera breyt­ingar á sam­starfi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Þetta kom fram í við­tali við Bjarna á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í síð­ustu viku. 

Þar sagði Bjarni: "Mér finnst það vel koma til greina að hreyfa til, bæði milli flokk­anna og innan rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Ég get vel séð fyrir mér að við gerum ein­hverjar slíkar breyt­ing­ar. Við höfum ekki tekið neina ákvörðun um slíkt en á næsta hálfa árinu væri rétt að taka þá ákvörðun um það ef til þess ætti að koma svo menn væru ekki að taka að sér ný verk­efni þegar of stutt er til kosn­inga."

Bjarni sagð­ist alltaf hafa verið opin fyrir slíkum breyt­ing­um. "Við ræddum það við stjórn­ar­mynd­un­ina við Sig­mundur að svona í hálf­leik myndum við kannski skoða þau mál.“

Tvær breyt­ingar hafa verið gerðar á ráð­herra­skipan það sem af er yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, sem er nú rúm­lega hálfn­að. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra undir lok árs 2014 og Ólöf Nor­dal, sem hafði stígið út af hinu póli­tíska sviði fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013, tók við af henni. Þá var Sig­rún Magn­ús­dóttir gerð að umhverf­is- og auð­lind­ar­ráð­herra þann 30. des­em­ber 2014 þegar ráð­herrum var fjölgað um einn. Áður hafði Sig­urður Ingi Jóhanns­son farið með ráðu­neyti ásamt þeim sem hann stýrir í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None