Seðlabankinn hafði ekki skýra lagaheimild til að flytja verkefni til ESÍ

15367564864-a2c806a43e-z.jpg
Auglýsing

Seðla­bankanki Íslands hafði ekki skýra laga­heim­ild til að flytja verk­efni við umsýslu og sölu eigna til einka­hluta­fé­lags í eigu bank­ans. Umrætt einka­hluta­fé­lag, Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ), hefur fengið til sín allar þær eignir og kröfur sem Seðla­bank­anum hefur áskotn­ast vegna hruns­ins. Um er að ræða eign­ir, meðal ann­ars hlutir í fyr­ir­tækjum og fast­eign­ir, og kröfur upp á hund­ruði millj­arða króna. ESÍ hefur á und­an­förnum árum selt margar þeirra eigna sem félag­inu áskotn­að­ist.

Í bréfi sem umboðs­maður Alþingis send­i fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, banka­ráði Seðla­banka Íslands, seðla­banka­stjóra og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í síð­ustu viku, vegna athug­unar sem hann hefur unnið á síð­ustu árum vegna ­at­riða tengdum athug­unum og rann­sóknum Seðla­banka Íslands um ætluð brot á reglum um gjald­eyr­is­höft, er fjallað sér­stak­lega um flutn­ing verk­efna Seðla­bank­ans á við umsýslu og sölu eigna til ESÍ.

Til­efni þess­arrar athug­unar umboðs­manns voru meðal ann­ars ábend­ingar um að þeir sem komið hefðu fram fyrir hönd bank­ans og ESÍ "hefðu gert það með áþekkum hætti og um væri að ræða einka­að­ila en ekki rík­is­stofn­un. "Er það afstaða umboðs­manns að skýr­ingar bank­ans um laga­heim­ild til flutn­ings verk­efn­anna hafi ekki verið full­nægj­andi. Umboðs­maður leggur áherslu á að auk þess sem full­nægj­andi laga­heim­ild þurfi að vera fyrir hendi til slíks flutn­ings opin­berra verk­efna frá rík­is­stofnun sé líka mik­il­vægt að þeir starfs­menn sem fjalli um þessi mál, við­semj­endur um þessar eignir og kröfur og almennir borg­arar séu ekki í vafa um eftir hvaða regl­um, svo sem um með­ferð valds og upp­lýs­inga, hæfi og máls­með­ferð að öðru leyti, eigi að fara í þessum til­vik­um."

Auglýsing

 

"Ruslakista" troð­full af hru­n­eignum



ESÍ hefur leikið stórt hlut­verk í upp­gjöri Seðla­banka Íslands við banka­hrunið und­an­farin ár. Inn í félag­ið, og dótt­ur­fé­lag þess Hildu, hefur þeim ­fulln­ustu­eignum og upp­gjörs­samn­ingum sem Seðla­bank­inn hefur leyst til sín verið hrúg­að. Á meðal þeirra eigna sem ESÍ heldur á eru allar kröfur Seðla­bank­ans á Glitni, Kaup­þing og Lands­bank­ann. Félagið er því langstærsti inn­lendri kröfu­hafi þeirra slita­búa, sem nú er stefnt að því að gera upp á næstu mán­uð­um. Það er oft kallað "ruslakista" Seðla­bank­ans í hálf­kær­ingi á meðal manna í við­skipta­líf­inu.

Í lok árs 2012 átti ESÍ bók­færðar eignir upp á 326 millj­arða króna. Stjórn­endur félags­ins hafa verið dug­legir við að selja eignir und­an­farin ár og um síð­ustu ára­mót voru eignir þess metnar á 209 millj­arða króna. Í ágúst aug­lýsti ESÍ dótt­ur­fé­lagið Hildu til sölu. Það félag á 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/­kröfur upp á 2,9 millj­arða króna. Hilda á alls sex dótt­ur­fé­lög og hjá félag­inu starfa 13 manns. Það hagn­að­ist um 1,5 millj­arð króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og mun­aði þar lang­mestu um hreinar rekstr­ar­tekj­ur, sem eru sala eigna og lána á tíma­bil­inu. Auk þess námu leigu­tekjur 139 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None