Segir Framsóknarmenn hafa viljað DV og að stór sameining sé í vændum

15003216120-c28ef99ddf-z.jpg
Auglýsing

Ólafur M. Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri mjólk­ur­bús­ins Kú og fyrrum stjórn­ar­for­maður DV, segir að Hrólfur Ölv­is­son, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi þrí­vegis fundað með sér undir því yfir­skini að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum vildu kaupa DV. Þetta hafi gerst á þeim tíma sem Ólafur var stjórn­ar­for­maður DV, en hann sagði sig úr stjórn­inni í maí í fyrra. Kjarn­inn sendi Hrólfi fyr­ir­spurn um málið í gær­morgun en svar hefur ekki borist. Þá svar­aði ekki á skrif­stofu Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar hringt var þang­að.

Hann segir að í kjöl­farið hafi Þor­steinn sagt honum að í bígerð væri stór sam­ein­ing DV við annan fjölmiðil

Ólafur var beð­inn um að taka sæti í stjórn DV að nýju eftir að nýir eig­end­ur, undir for­ystu Þor­steins Guðna­son­ar, tóku við miðl­inum í sept­em­ber. Hann segir að í kjöl­farið hafi Þor­steinn sagt honum að í bígerð væri stór sam­ein­ing DV við annan fjöl­mið­il. Heim­ildir Kjarn­ans herma að fjöl­miðl­arn­ir ­sem Þor­steinn hafi áhuga á að sam­ein­ast séu Vef­pressan (sem rekur m.a. Eyj­una, Bleikt og Press­una), Frétta­tím­inn og/eða Útvarp Saga. Ein­hverjar við­ræður hafa átt sér stað við að minnsta kosti hluta þess­arra fjöl­miðla. Kjarn­inn hefur ítrekað reynt að ná sam­bandi við Þor­stein sím­leiðis síð­ustu tvo daga en án árang­urs.

Auglýsing

Mikil átök um DV



Síð­sum­ars hófust  mikil átök um eign­ar­hald DV þegar hópur undir for­ystu Þor­steins Guðna­sonar vildi fá meiri­hluta í stjórn í takt við eign sína.

Á starfs­manna­fundi sem hald­inn var dag­inn eftir að Þor­steinn og sam­starfs­menn hans náðu yfir­tökum á DV, og ráku Reyni Trausta­son fyrrum aðal­eig­anda og rit­stjóra úr starfi, kom fram að Þor­steinn ætl­aði sér ekki að eiga hlut sinn í DV lengi. Kjarn­inn komst yfir upp­töku af fund­inum þar sem Þor­steinn full­yrðir þetta.

Þor­steinn sagði einnig á fund­inum að eign­ar­hald hans væri að mestu til­komið vegna þess að Gísli Guð­munds­son, kenndur við B&L, hefði lánað Reyni Trausta­syni fé fyrir tveimur árum og fram­selt kröfu vegna þess láns til Þor­steins. Kaup Þor­steins á öðrum hlutum í DV, meðal ann­ars hlut Lilju Skafta­dótt­ur, voru fjár­mögnuð með eigin fé og láns­fé. Allt í allt segir Þor­steinn að hann og við­skipta­fé­lagar hans hafi sett 85 millj­ónir króna í DV.

Stór sam­ein­ing í bígerð



Ólafur M. Magn­ús­son átti hlut í DV um skeið og sat sem stjórn­ar­for­maður í eign­ar­halds­fé­lagi mið­ils­ins þar til í maí 2013. Í sam­tali við Kjarn­ann seg­ist hann hafa verið beð­inn, af Þor­steini, að koma aftur inn í stjórn eftir að nýir eig­endur voru teknir við. „Þeir vildu vita hvort ég væri til­bú­inn að koma og taka til í þessum rekstri eins og ég hafði gert með Reyni og félögum með ágætis árangri. Ég sagði fyrst að ég væri svo sem alveg til í að skoða þetta, en það væri hins vegar mikið að gera hjá mér. Síðan er ég kos­inn í stjórn DV, og það til­kynnt opin­ber­lega, án þess að það hafi verið rætt neitt frekar við mig.“

olafur_i_mjolku_ur_kastljos.jpg_frame_0 Ólafur M. Magn­ús­son hefur verið staðið í deilum við Mjólk­ur­sam­söl­una und­an­farin ár. Vegna fjár­hags­vanda neydd­ist hann meðal ann­ars til að selja Mjólku, fyr­ir­tæki sem hann stofn­aði og stýrði, til Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga er auk þess á meðal eig­enda Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar.

Í kjöl­farið hafði Þor­steinn Guðna­son, sem þá var orð­inn stjórn­ar­for­maður DV, sam­band við Ólaf og bað hann um að taka að sér for­manns­sæti í nefnd sem átti að taka rekstur DV í gegn. Ólafur seg­ist strax hafa séð að hann gæti ekki tekið að sér svo mikla auka­vinnu. „Ég var mjög upp­tek­inn í mínum rekstri og sagði Þor­steini það. Hann sagði á móti að þetta myndi ekki standa yfir mjög lengi. Hann væri að biðja mig um að taka þetta starf í einn og hálfan til tvo og hálfan mán­uð. Í bígerð væri stór sam­ein­ing. Þá vissi ég hvað bjó að baki og sagði mig frá þessu.“

Segir Fram­sókn­ar­flokk­inn vilja DV



Aðspurður um hvað hann eigi við með ummælum sínum seg­ist Ólafur hafa grun­semdir um að sterk pen­inga­öfl, sem teng­ist Fram­sókn­ar­flokkn­um, séu að kom­ast yfir DV. Vilji til þess hafi staðið yfir lengi.

Þegar ég var stjórn­ar­for­maður DV á sínum tíma þá kom fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins og hitti mig nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti beitt mér fyrir því hvort að menn tengdir flokknum gætu kom­ist í að kaupa bréf í DV með ein­hverjum hætti.

Því til stuðn­ings segir Ólafur að Hrólfur Ölv­is­son, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi komið þrí­vegis á sinn fund þegar hann var stjórn­ar­for­maður DV. Til­gang­ur­inn var að kanna hvort menn tengdir Fram­sókn­flokknum gætu keypt sig inn í DV. „Þegar ég var stjórn­ar­for­maður DV á sínum tíma þá kom fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins og hitti mig nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti beitt mér fyrir því að menn tengdir flokknum gætu kom­ist í að kaupa bréf í DV með ein­hverjum hætti. Það yrði auð­vitað ekki flokk­ur­inn sjálf­ur, heldur menn sem Kaup­fé­lag Skag­firð­inga myndi útvega fjár­muni til þess að gera það. Ég ljáði auð­vitað aldrei máls á þessu.“

Sam­þykktum breytt svo DV gæti sam­ein­ast öðrum



Á hlut­hafa­fundi DV, sem fram fór 8. októ­ber síð­ast­lið­inn, voru gerðar breyt­ingar á sam­þykktum félags­ins. Þor­steinn Guðna­son sendi frá sér til­kynn­ingu í kjöl­farið þar sem sagði meðal ann­ars að DV geti stækkað innan frá, til dæmis með yfir­töku eða sam­ein­ingu við önnur félög á fjöl­miðla­mark­aðn­um. „Senn­i­­lega mun hvoru tveggja ger­­ast. Til að renna enn styrk­­ari stoðum und­ir fé­lagið hafa for­svar­s­­menn þess átt í við­ræðum við aðra fjöl­miðla um sam­­starf eða við­skipt­i. Vinna við stefn­u­­mót­un mun m.a. leiða í ljós með hvaða hætti slíkt sam­­starf eða við­skipti bera að. Mun frek­ar verða greint frá þessu á næstu dög­um, auk þess sem frek­­ari skipu­lags­breyt­ing­ar eru fyr­ir­hug­aðar í ljósi manna­breyt­inga sem urðu ný­verið inn­­an fyr­ir­tæk­is­ins.“

Ólafur M. Magn­ús­son hefur staðið í deilum við Mjólk­ur­sam­söl­una und­an­farin ár. Vegna fjár­hags­vanda neydd­ist hann meðal ann­ars til að selja Mjólku, fyr­ir­tæki sem hann stofn­aði og stýrði, til Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga er auk þess á meðal eig­enda Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None