Tillaga um að draga ESB-umsókn til baka kemur fram á næstu dögum

h_50808676.jpg
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gerir ráð fyrir því að til­laga um að draga aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu til baka komi fram á Alþingi á næstu dög­um. Þetta kom fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn Guð­mundar Stein­gríms­son­ar, þing­manns Bjartrar fram­tíð­ar, um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma sem nú er á Alþingi.

Á síð­ustu vikum hafa Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni allir tjáð sig um fram­lagn­ingu þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að draga aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu til bak­a. ­Til­lagan var lögð fram á síð­asta þingi.

Sig­mundur Davíð sagð­ist í upp­hafi árs búast við því að ný til­laga yrði lögð fram á vor­þingi, Gunnar Bragi sagð­i að afstaða hans hafi ekki breyst frá því hann lagði til­lög­una fram síð­ast og Bjarni sagði að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi styðja til­lög­una kæmi hún fram. Gunnar Bragi hefur þó sagt að mögu­lega verði gerðar ein­hverjar breyt­ingar á til­lög­unni.

Auglýsing

Nokkur þús­und manns mót­mæltu nokkrar helgar í röð í febr­úar og mars á síð­asta ári í kjöl­far þess að Gunnar Bragi lagði fram til­lög­una þá. Málið vakti líka miklar deilur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem margir lyk­il­menn voru því mót­falln­ir. Þeirra á meðal voru Ragn­heiður Rík­harðs­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður flokks­ins, og Þor­steinn Páls­son, fyrrum for­maður hans.

Frum­varpið var lagt fram í kjöl­far birt­ingar skýrslu sem Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands gerði fyrir stjórn­völd um við­ræð­urn­ar. Sam­kvæmt henni vor­u veru­lega litlar líkur á því að Ísland geti fengið und­an­­þágur frá grunn­reglu­verki ESB. Skömmu síðar kom út skýrsla Alþjóða­stofn­unar Háskóla Íslands sem sýndi allt aðra nið­ur­stöðu og sagði að Ísland hefði þegar náð fram ýmis konar und­an­þág­um.

Skipu­leggj­endur mót­mæl­end­anna og margir þátt­tak­end­anna í þeim töldu að stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokk­ur, hefðu lofað því fyrir síð­ustu kosn­ingar að slíta ekki við­ræðum við ESB nema að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæð­ar­greiðslu um mál­ið.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None