Tvö kynferðisbrot komu inn á borð lögreglunnar í Eyjum um helgina

Vestmannaeyjar-1.jpg
Auglýsing

Tvö kyn­ferð­is­brot komu til rann­sóknar hjá lög­regl­unni í Vest­manna­eyjum um helg­ina. Fyrra málið kom inn á borð lög­reglu aðfara­nótt sunnu­dags og á að hafa átt sér stað í kringum mið­nætti kvöldið áður, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni í Vest­manna­eyjum, þar sem farið er yfir störf lög­regl­unnar um liðna versl­un­ar­manna­helgi. Einn maður var hand­tek­inn eftir skipu­lagða leit í Herj­ólfs­dal. Um málin tvö seg­ir:

„Tvö kyn­ferð­is­brot komu til rann­sóknar hjá lög­reglu. Fyrra málið kom inn á borð lög­reglu aðfara­nótt sunnu­dags en meint brot á að hafa átt sér stað í kringum mið­nætti kvöldið áður. Þol­and­inn, ung stúlka, fékk við­eig­andi aðstoð og var flutt á neyð­ar­mót­töku á Land­spít­al­ann í Reykja­vík og var til­nefndur rétt­ar­gæslu­mað­ur. Rann­sókn er að mestu lokið en óljóst um máls­at­vik.

Seinna málið var til­kynnt lög­reglu að kvöldi sunnu­dags en á að hafa átt sér stað eftir mið­nætti aðfara­nótt sunnu­dags. Um tengda aðila er að ræða og fékk konan við­eig­andi aðstoð og var flutt á neyð­ar­mót­töku á Land­spít­al­ann í Reykja­vík og var til­nefndur rétt­ar­gæslu­mað­ur. Vett­vangur var rann­sak­aður og sak­born­ingur hand­tek­inn af lög­reglu skömmu eftir til­kynn­ingu þar sem skipu­lögð leit fór fram af honum í Herj­ólfs­dal. Málið telst upp­lýst og rann­sókn vel á veg kom­in.“

Auglýsing

Fram kom í dag að þrjár konur hafi leitað til neyð­ar­mót­töku kyn­ferð­is­brota á Land­spít­al­anum í Foss­vogi eftir versl­un­ar­manna­helg­ina. Brotin voru öll framin á Þjóð­há­tíð í Eyj­um. Þá vildi Páley Borg­þórs­dótt­ir, lög­reglu­stjóri í Vest­mann­eyj­um, ekki upp­lýsa frétta­stofu RÚV um hvort kyn­ferð­is­brot hafi komið á borð lög­regl­unnar um helg­ina, en vís­aði til til­kynn­ing­ar, sem nú hefur verið birt á vef­síðu lög­regl­unn­ar.

„Lög­regla telur 15.000 manns hafa sótt þjóð­há­tíð Vest­manna­eyja að þessu sinni. 26 lög­reglu­menn sinntu lög­gæslu og 100 gæslu­menn. Auk þeirra var starf­andi læknir í dalnum og annað heil­brigð­is­starfs­fólk, áfallateymi og sjúkra­flutn­inga­menn. Áfallateymi aðstoð­aði fólk við ýmis mál svo sem sjálfs­vígs­hugs­an­ir, kvíða og fleira. Barna­vernd­ar­starfs­menn sinntu auk þess málum barna undir 18 ára aldri sem komu upp á hátíð­inn­i,“ segir um hátíð­ina. Er það mat lög­regl­unnar að henni hafi tek­ist vel til við lög­gæslu.

„Miðað við fyrri hátíðir fór þjóð­há­tíðin vel fram og er það mat lög­reglu að lög­gæsla hafi gengið vel á hátíð­inni og gæsla hafi verið öfl­ug. Við­bragð í sjúkra­skýli, hjá áfallateymi og barna­vernd var gott og fjöl­mörgum sem var sinnt vegna mis­mun­andi erf­ið­leika. Það er miður að upp hafi komið kyn­ferð­is­brot en áhersla var á vönduð og fag­leg vinnu­brögð við þeim þar sem rann­sókn­ar­hags­munir og hags­munir brota­þola voru settir í for­gang. Það er mat lög­reglu og áfallateymis að vel hafi tek­ist til með að senda ekki taf­ar­lausar upp­lýs­ingar um alvar­leg­ustu brotin til fjöl­miðla heldur að veita slíkar upp­lýs­ingar á réttum tíma­punkti eins og alltaf hafi staðið til.“

Fíkni­efna­mál voru mörg á hátíð­inni eða alls 72 tals­ins. Mest var hald­lagt af hvítum efnum og í að minnsta kosti 5 þeirra var um sölu og dreif­ingu að ræða. „Að mati lög­reglu þykir þessi árangur í fíkni­efna­málum hafa komið í veg fyrir alvar­leg ofbeld­is­brot þar sem þekkt er að af neyslu hvítra efna verða menn árás­ar­gjarn­ari en ella.

Engar alvar­legar lík­ams­árásir voru kærðar til lög­reglu en sex mál vegna minni­háttar lík­ams­árása eru til rann­sóknar án þess þó að hafa verið kærð­ar. Eitt mál kom upp er varðar nytja­stuld og eigna­spjöll og hefur það verið upp­lýst,“ segir lög­reglan í Vest­manna­eyj­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None