Útskrift af símtali Davíðs og Geirs hefur farið víða

10016524533-0ff5c08222-z1.jpg
Auglýsing

Útskrift af frægu sím­tali Dav­íðs Odds­son­ar, þáver­and­i ­Seðla­banka­stjóra, og Geirs H. Haar­de, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, frá 6. októ­ber 2008, varð­andi 500 millj­óna evru þrauta­vara­lán Seðla­bank­ans til Kaup­þings, hefur farið víða í stjórn­sýsl­unni. Tap skatt­greið­enda vegna lán­veit­ing­ar­innar nemur um 35 millj­örðum króna.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál fékk útskrift af sím­tal­inu



Frétta­stofa RÚV óskaði eftir því árið 2012 að Seðla­bank­inn léti umrædda hljóð­upp­töku af hönd­um, en bank­inn synj­aði beiðni frétta­stof­unnar um afhend­ingu upp­tök­unn­ar. Hljóð­upp­takan væri und­an­skilin upp­lýs­inga­lögum vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæða í lögum um Seðla­bank­ann. Frétta­stofan kærði synj­un­ina til Úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Í úrskurði nefnd­ar­innar er synjun Seðla­bank­ans stað­fest, en þar kemur fram að bank­inn hafi sent Úrskurð­ar­nefnd­inni afrit af útskrift sím­tals­ins í trún­aði, ásamt bréfi þar sem Seðla­bank­inn gerði athuga­semdir við kæru máls­ins.

Á þessum tíma áttu sæti í Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál; Trausti Fannar Vals­son lög­fræð­ing­ur, sem jafn­framt var for­maður nefnd­ar­inn­ar, Frið­geir Björns­son fyrr­ver­andi dóm­stjóri, og Sig­ur­veig Jóns­dóttir blaða­mað­ur.

Davíð Oddsson, fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Íslands, og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Davíð Odds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Seðla­banka Íslands, og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.

Auglýsing

Umboðs­maður Alþingis kynnti sér inni­hald sím­tals­ins



Frétta­stofa RÚV vís­aði úrskurði nefnd­ar­innar til Umboðs­manns Alþing­is, sem gerði ekki athuga­semd við að Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefði synjað frétta­stof­unnar um aðgang að hljóð­upp­töku að fyrr­greindu sím­tali. Í nið­ur­stöðu Umboðs­manns kemur fram að emb­ætt­inu hafi sömu­leiðis borist útskrift af sím­tal­inu.

Þá hefur Kjarn­inn heim­ildir fyrir því að útskrift af sím­tali Dav­íðs og Geirs hafi verið sent For­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Fjár­laga­nefnd Alþingis sótti fast á sínum tíma að fá afhenda sjálfa hljóð­upp­tök­una af sím­tal­inu, til að glöggva sig á því hvern­ig ­staðið var að lán­veit­ing­unni til Kaup­þings, án árang­urs. Seðla­bank­inn heim­il­aði að lokum nefnd­ar­mönnum fjár­laga­nefndar að lesa útskrift­ina af sím­tal­inu á sér­stökum fundi með full­trúum Seðla­bank­ans. Nefnd­ar­menn fengu hins vegar hvorki að halda eftir ein­tökum af útskrift­inni, né vitna til hennar í opin­berum skýrsl­um.

Geir H. Haarde neitar að aflétta trún­aði af hljóð­upp­tök­unni



Af­hend­ing á upp­töku sím­tals­ins hefur strandað á Geir H. Haarde fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Í við­tali í sjón­varps­þætt­inum Eyj­unni á dög­un­um, ítrek­aði Geir afstöðu sína til þess að trún­aði á sím­tal­inu yrði ekki aflétt.

„Þetta sam­tal, það er búið að vera að magna það upp. Ómerki­legir stjórn­mála­menn sem hafa verið að reyna að gera það að ein­hverju aðal­at­riði. Þetta sam­tal var tekið upp, reyndar ekki með minni vit­und. Ég vil ekki birta það því ég tel að það eigi ekki að hlera eða taka upp sam­töl við for­sæt­is­ráð­herr­ann við svona aðstæð­ur. Þá geta menn bara komið seinna og reynt að koma á menn höggi vegna þess," sagði Geir H. Haarde í þætt­inum aðspurður um hljóð­upp­tök­una.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None