Viljayfirlýsing um fjármögnun álvers í Skagabyggð undirrituð

Klappir-Development_NFC_Undirritun-viljayfirl--singar-1.jpg
Auglýsing

Félagið Klappir Develop­ment ehf. og  China Non­fer­rous Metal Industry´s For­eign Engineer­ing and Construct­ion (NFC) hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um fjár­mögnun á bygg­ingu 120 þús­und tonna álvers við Haf­ur­staði í Skaga­byggð, sem er í Norð­vest­ur­kjör­dæmi norðan við Blöndu­ós. ­Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Zhang Weidong, sendi­herra Kína á Íslandi, fluttu ávörp við und­ir­rit­un­ina, sem fór fram í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu síð­degis í gær.

Í til­kynn­ingu vegna þess segir að Klappir og NFC vinni um þessar mundir í sam­ein­ingu að hag­kvæmni­at­hugun vegna bygg­ingar og rekst­urs fyr­ir­hug­aðs álvers. Heild­ar­kostn­aður verk­efn­is­ins sé áætl­aður rúmir 100 millj­arðar króna, eða um 780 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Áætl­anir ger­i ráð fyrir 240 var­an­legum störfum í álveri Klappa og allt að 800 tíma­bundnum störfum á bygg­ar­tíma.

Ætla að fjár­magna í gegnum kín­verska eða aðra banka



Þar er haft eftir Ingvari U. Skúla­syni, fram­kvæmda­stjóra Klappa Develop­ment að und­ir­rit­unin sé mik­il­vægur áfangi í unfirbún­ings­ferl­inu. "Klappir og sveit­ar­fé­lögin á Norð­ur­landi vestra fagna því að jafn öfl­ugur og traustur aðili og NFC skuld­bindi sig til þát­töku í þróun verk­efn­is­ins. Fram­boð á nauð­syn­legri orku mun ráða því hvenær hægt verður að hefja rekstur álvers að Haf­urs­stöð­u­m." Ingvar er skráður eini eig­andi Klappa Develop­ment í fyr­ir­tækja­skrá.

Í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni á milli Klappa Develop­ment og NFC er kín­verska sam­starfs­að­il­anum falin svokölluð „al­fram­kvæmd“ (e. turn­key) verk­efn­is­ins. Sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni ábyrgist NFC fjár­mögnun a.m.k. 70 pró­sent kostn­aðar við fram­kvæmd­ina og upp­bygg­ingu inn­viða í gegnum kín­verska eða aðra banka, auk þess að ábyrgj­ast bygg­ingu allra mann­virkja sem og rekstur álvers­ins á meðan upp­keyrslu þess stend­ur.  Í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni er einnig kveðið á um sam­vinnu Klappa og NFC um gerð samn­inga við þriðja aðila um for­sölu fram­leiðslu­af­urða (e. offta­ke) sem og um sam­starf um gerð samn­inga við selj­endur hrá­efn­is.

Auglýsing

Orka liggur ekki á lausu



Ljóst er að orka fyrir verk­efni að þess­ari stærð­argráðu liggur ekki á lausu. Í Morg­un­blað­inu í morgun var greint frá því að í kjöl­far þess að Alþingi sam­þykkti breyt­ing­ar­til­lögu við ramma­á­ætl­un, sem felur í sér að hvorki Holta­virkjun né Urriða­foss­virkjun eru settar í nýt­ing­ar­flokk, væri ljóst að Lands­virkjun muni ekki geta útvegað nægi­lega orku til að anna tveimur stórum stór­iðju­verk­efnum í Helgu­vík og á Grund­ar­tanga. Um er að ræða kís­il­málm­verk­smiðju Thorsil á fyrr­nefnda staðnum og sól­ar­kís­il­verk­smiðju Sil­icor Mater­i­als á þeim síð­ar­nefnda. Þau verk­efni eru bæði komin lengra á veg en fyr­ir­hugað álver í Skaga­byggð.

Land­vernd hefur lagst alfarið á móti því að reist verði álver á Norð­vest­ur­landi en sveit­ar­fé­lög á svæð­inu höfðu þegar skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu við Klappir vegna verk­efn­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None