Átakasaga og togstreita einkenna Kína nútímans

Kommúnistaflokkurinn ræður enn öllu í Kína.

Gríð­ar­legar breyt­ingar hafa orðið í Kína á stuttum tíma. Ört stækk­andi milli­stétt, aukin lífs­gæði og meiri tengsl við umheim­inn hafa þar valdið straum­hvörf­um. Kín­versk stór­fyr­ir­tæki, á borð við Ali Baba og Huawei, eru að hasla sér völl á alþjóð­legum mörk­uðum auk þess sem kín­versk stjórn­völd hafa nýlega stigið fram á sjón­ar­sviðið sem boð­berar alþjóð­legs við­skipta­frelsis og fram­fara.

Þrátt fyrir efna­hags­legar fram­farir er staða mann­rétt­inda í Kína enn þá veik, t.d. er bannað að gagn­rýna stjórn­völd opin­ber­lega enda ræður ein­ræð­is­stjórn Komm­ún­ista­flokks­ins lögum og lofum í rík­inu. Kína er enn þró­un­ar­ríki þar sem flestir íbúar búa við fátækt og minni­hluta­hópum er haldið í skefjum með her­valdi. Því er eðli­legt að spyrja hvort Kína geti raun­veru­lega orðið alþjóð­legt stór­veldi í náinni fram­tíð.

Í nýjasta þætti Alþjóða­varps­ins ræða þeir Hall­grímur Odds­son og Hjalti Geir Erlends­son um Kína við Gauk Jör­unds­son, sem bjó Í Kína um þriggja ára skeið. Gaukur er lög­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og London School of Economics auk þess að vera með meist­ara­próf í alþjóða­stjórn­málum frá hinum virta Pek­ing-há­skóla í Kína. Hann hefur sömu­leiðis ferð­ast víða um Kína og þekkir því fjöl­breyti­leika þessa fjöl­menn­asta ríkis heims.

Að mati Gauks er nauð­syn­legt er að kunna skil á storma­samri sögu Kína síð­ast­liðna ára­tugi til þess að skilja Kína nútím­ans. Í þætt­inum er meðal ann­ars fjallað um sögu Kína á 20. öld, stöðu mann­rétt­inda, aukna þjóð­ern­is­kennd og fram­tíð­ar­horfur í efna­hags­málum Kína.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023