Álitlegir álar með átraskanir

Rófið með Nínu Richter og Stefáni Pálssyni

Bók­staf­ur­inn Á er næstur í Róf­inu, og eru það álar og átrask­anir sem eru þemu þátt­ar­ins að þessu sinni. Stefán fræðir okkur um álinn, sem er merki­legri en margir halda, og að auki eru álarnir við Íslands strendur með sér­stöðu sem gerir þá mögu­lega að merki­leg­ustu álum í heimi. Nína skoðar síðan átrask­anir frá heldur óvenju­legum vinkli, og veltir upp rösk­uðum átmynstrum sem eru minna þekkt meðal almenn­ings. Stút­fullur þáttur af fróð­leik með smá vit­leysu í bland.

Stefán Páls­son og Nína Richter taka fyrir óvenju­leg mál­efni í óvenju­legum þætti sem er að vissu leyti óður til sjón­varps­þátt­anna bresku QI, sem Stephen Fry gerði fræga. Hver þáttur hefur sinn bók­staf, sem er upp­hafs­stafur þeirra mál­efna sem rædd eru í þætt­in­um. Hvor þátt­ar­stjórn­and­inn velur sér eitt mál­efni til að fjalla um en síðan tengj­ast mál­efnin einnig á óvæntan hátt. Þátt­ur­inn er í senn fróð­legur og fárán­leg­ur, og geta hlut­föllin þar á milli sveifl­ast til.

Nína og Stefán eru bæði á Twitt­er. Nína er @kisum­amma og Stefán er @stebbip. Þátt­ur­inn hefur einni fengið sinn eigin reikn­ing: @sta­frofid. Ef fólk vill hafa sam­band, kvart yfir þátta­stjórn­endum eða koma með ábend­ingar um sniðug umfjöll­un­ar­efni þá er Face­book-­síða þátt­ar­ins hér á face­book.com/rofid­hla­dvarp.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023