Ástand í Argentínu: Boltinn stopp eftir áralanga spillingu - viðtal við ristjóra Golazo Argentino

Í Sparkvarpi vik­unnar er rætt við Peter Coates, rit­stjóra fót­bolta­tíma­rits­ins Gonza­o­Ar­gentino. Coates er á lín­unni frá Buenos Aires í Argent­ínu en hann hefur verið þar um þó nokkuð skeið og skrifar einnig fyrir Indipendent, Gazettaworld og WhoScored um deild­ar­keppn­ina í land­inu og um argent­ínska lands­lið­ið.

Deild­ar­keppnin í Argent­ínu er stopp þessa dag­ana vegna skorts á fjár­magni hjá argent­ínska knatt­spyrnu­sam­band­inu, AFA. Liðin hafa ekki fengið greiðslur og neita að spila þangað til að þau fá greitt. Þetta er eitt­hvað sem sam­bandið hefur verið að reyna að leysa en vand­inn felst í sjón­varps­rétt­ar­samn­ing­um. Tals­verð spill­ing hefur verið innan sam­bands­ins síð­ustu ár sem má rekja til valda­tíðar Julio Grondona sem lést árið 2014 og hafði verið for­seti sam­bands­ins síðan 1979.

Þeir Þór­hallur og Þor­geir spurðu Coates um stöðu mála og um Barras brava-­stuðnigs­manna­sveit­irn­irn­ar, sem eru nokk­urs konar Ultras í Argent­ínu. Barras brava eru flæktir inn í knatt­spyrnu­fé­lögin í land­inu og hafa gríð­ar­leg völd hjá lið­un­um. Þar stjórna þeir ýmsu eins og til dæmis kaupum á leik­mönn­um, end­ur­sölu miða o.s.frv.

Í við­tal­inu við Coates er einnig farið yfir Superclasico-slag­inn, milli Boca og River. Auk þess spurðu strák­arnir hversu mikil áhrif fall River Plate úr efstu deild árið 2011 hefur haft á fót­bolta í Argent­ínu. Deild­ar­kerfið í Argent­ínu er ólíkt því sem tiðkast í Evr­ópu að því leyti að árangur síð­ustu þriggja ára skiptir máli sem gerir fall River enn merki­legri.

Þá ræddu þeir furðu­legt val lands­liðs­þjálf­ar­ans Edgardo Bauza í leik­manna­hóp­inn en liðið hefur ekki staðið sig vel í und­ankeppni HM og situr liðið í 5. sæti suð­ur­-am­er­íska rið­ils­ins. Bauza hefur kosið að velja hinn 28 ára gamla Lucas Pratto sem spilar í Brasílíu fram yfir leik­menn eins og Mauro Icardi og Lucas Alario, fram­herja River Plate. Auk þess tal­aði Peter um slappt gengi U20 lands­liðs­ins sem rétt komst á HM U20 sem verður haldið á þessu ári.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023