365 er að njósna um netnotendur sína. Eða hvað?

Frétta­til­kynn­ing 365 sem birt var á dög­unum fékk marga til þess að halda að 365 væri að fylgj­ast með net­um­ferð inter­netá­skrif­enda sinna. Umsjón­ar­menn Tækni­varps­ins ráku í það minnsta upp stór augu þegar þeir lásu til­kynn­ing­una og ákváðu að kanna mál­ið.

Í ljós kom að þarna væri um að ræða bar­áttu­kall frá FRÍSK – hinu nýja SMÁÍS – þar sem talað er um að sér­hæft fyr­ir­tæki hafi verið fengið til þess að fylgj­ast grannt með IP-­tölum þeirra sem hlaða íslensku sjón­varps­efni inn á ólög­legar síður og dreifi­veit­ur.

Fréttir af til­kynn­ing­unni hljóm­uðu hins vegar svo­lítið eins og að 365 væri að skoða notkun áskrif­enda að inter­net­inu hjá fyr­ir­tæk­inu. Ein fyr­ir­sögnin var á þá leið að bein­línis mátti skilja að 365 fylgd­ist með ólög­legu nið­ur­hali not­enda sinna.

Umsjón­ar­menn Tækni­varps­ins þessa vik­una eru Gunn­laugur Reynir Sverr­is­son, Atli Stefán Yngva­son, Andri Valur Ívars­son og Sverrir Björg­vins­son. Þeir ræða ólög­legt nið­ur­hal og dreif­ingu á höf­unda­vörðu efni í þætt­inum í dag auk þess að spjalla um nýj­ungar hjá lög­legu streym­isveit­unni Net­fl­ix.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023