Allir bankarnir á Íslandi eru bestir á Íslandi

Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, veitti viðurkenningunni frá The Banker móttöku fyrir hönd Arion banka.
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, veitti viðurkenningunni frá The Banker móttöku fyrir hönd Arion banka.
Auglýsing

Arion banki greindi frá því í dag að bank­inn hefði ver­ið val­inn banki árs­ins á Íslandi árið 2015 af tíma­rit­inu The Banker, sem er gef­ið út af Fin­ancial Times. Þar með end­ur­heimti Arion banki þann titil frá­ Ís­lands­banka sem hlaut hann árið 2014, en Arion banki hafði hirt hann árið 2013. Þá ákvað bank­inn að gefa öllum starfs­mönnum sínum 125 þús­und krónur í bón­us­greiðslur fyrir jólin og 30 þús­und króna gjafa­kort sem gilti í öll­u­m versl­unum auk gjafa­körfu sem metin var á nokkra tugi þús­unda króna. Sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins frá því snemma í des­em­ber hefur engin ákvörðun verið tek­in um greiðslu jóla­bónusa í Arion banka enn sem sem komið er.

Þetta eru ekki einu verð­launin sem íslenskir bankar fá fyr­ir­ að vera best­ir. Tíma­ritið Euromo­ney verð­launar þá líka og þar hef­ur Ís­lands­banki unnið verð­laun fyrir að vera besti banki á Íslandi þrjú ár í röð. 

Lands­bank­inn þarf ekki að örvænta þótt þessi tvö alþjóð­leg­u ­tíma­rit hafi snið­gengið bank­ann á und­an­förnum árum í keppn­inni um að ver­a best­ur. Hann hefur nefni­lega fengið verð­laun frá tima­rit­inu Global Fin­ance Mag­azine und­an­farin tvö ár fyrir að vera besti banki á Íslandi.

Auglýsing

Vert er að taka fram að sækja þarf um að taka þátt í öll­u­m þessum verð­laun­um. Því senda íslensku við­skipta­bank­arnir þrír, sem voru all­ir end­ur­reistir með skattfé og inn­stæðum Íslend­inga á grunni gjald­þrota banka, ­fengu eignir sínar og sam­an­lagt yfir 90 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í vöggu­gjöf, starfa innan fjár­magns­hafta á einum mesta fákeppn­is­mark­aði sem fyr­ir­finnst í ver­öld­inni og eru nán­ast ein­vörð­ungu með inn­lenda starf­semi, allir inn umsóknir til erlendra tíma­rita og föl­uð­ust eftir því að vera valdir besti bank­inn á Ísland­i. 

Og allir unnu. Ham­ingju­óskir úr bak­her­berg­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None