Hagsmunir sjávarútvegs í fyrirrúmi

Forsíða Morgunblaðsins 22.desember 2015.
Forsíða Morgunblaðsins 22.desember 2015.
Auglýsing

Morg­un­blaðið hefur verið dug­legt að fjalla um sjón­ar­horn og skoð­anir hags­muna­að­ila í sjáv­ar­út­vegi á stuðn­ingi Íslands við við­skipta­þving­anir Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna í garð Rússa.

22. des­em­ber birt­ist for­síðu­frétt á Morg­un­blað­inu um skoð­un Kol­beins Árna­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, á ó­breyttri afstöðu Íslands til við­skipta­þving­an­anna. Í frétt­inni kom fram að afstaðan kosti íslenskan ­sjáv­ar­út­veg átta til tólf millj­arða króna á árs­grund­velli. Evr­ópu­sam­band­ið hafði sam­þykkt nokkrum dögum áður að fram­lengja við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum um sex mán­uði og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hafði sag­t op­in­ber­lega að afstaða Íslands gagn­vart stuðn­ingi við aðgerð­irnar yrði óbreytt. For­síð­una má sjá hér að neð­an.

Moggi2

Auglýsing

Í dag, 4. jan­ú­ar, er síðan for­síðu­frétt um skoðun Jens ­Garð­ars Helga­son­ar, stjórn­ar­for­mann Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, á þátt­töku Íslands í við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­um. Þar segir Jens Garðar að við­skipta­bann Rússa, sem lagt var á íslenskar vörur vegna stuðn­ings okkar við við­skipta­þving­an­irn­ar, kosti þjóð­ina tólf til þrettán millj­arða króna á árin­u 2016. 

Því ræddi Morg­un­blaðið við bæði fram­kvæmda­stjóra og ­stjórn­ar­for­mann hags­muna­sam­taka útgerð­ar­manna um skoðun þeirra á póli­tískum að­gerðum rík­is­stjórnar Íslands á for­síðu blaðs­ins á innan við tveimur vik­um. Og í milli­tíð­inni hækk­aði áætl­aður árlegur kostn­aður Íslands vegna stuðn­ings við við­skipta­þving­anir gegn Rússum úr átta til tólf millj­örðum króna í tólf til­ ­þrettán millj­arða króna.

Þessi fram­setn­ing á fréttum um hags­muni útgerð­ar­fé­laga þarf ­reyndar ekki að koma neitt sér­stak­lega á óvart. Alls eiga félög tengd ­sjáv­ar­út­vegi 79,37 pró­sent hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Flest­ir ­for­svars­menn félag­anna hittast víðar en á hlut­hafa­fundum Árvak­urs. Þeir sitja nær allir í stjórn Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, sem áður hét Lands­sam­band íslenskra ­út­gerð­ar­manna (LÍÚ).

Þegar hlutur félags Sig­ur­björns Magn­ús­son­ar, sem situr í stjórn Ísfé­lags Vest­manna­eyja, og Hall­dórs Krist­jáns­son­ar, tengda­sonar fyrrum ­eig­enda Stál­skipa, er talin með fer þetta hlut­fall upp í 95,84 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None