Endalok flokksins eða nýr byrjunarpunktur

Árni Páll Árnason
Auglýsing

Sam­fylk­ingin er í sárum, og hefur frá því hún var stofnuð árið 2000 lík­lega aldrei verið nær því að lið­ast í sund­ur. Hennar helsta vanda­mál í augna­blik­inu eru ekki fylgis­töl­ur, sem eru þó þær lægstu sem sést hafa frá stofnun flokks­ins (9,2 pró­sent Gallup). Heldur er flokkur með sundraða for­ystu­sveit, óljósa mál­efna­stöðu og virð­ist með engu móti átta sig á erindi sín­u. 

Árni Páll Árna­son, for­maður flokks­ins, hefur lengi verið lask­aður í sínu hlut­verki vegna þess hve veikt umboð hann hefur haft, einkum eftir síð­asta lands­fund þar sem hann stóð uppi sem sig­ur­veg­ari í for­manns­kosn­ingu, með eins atkvæðis mun, eftir bar­áttu við Sig­ríði Ingi­björgu Inga­dótt­ur. 



Í bréfi sem Árni Páll sendi á flokks­menn í gær, fjallar hann um mis­tök sem Sam­fylk­ing­in hefur gert á und­an­förnum árum, sem hann telur að séu meðal ástæðna fyrir slæmri stöðu flokks­ins. Meðal ann­ars gagn­rýnir hann hvernig stofnað var til ESB-að­ild­ar, á grund­velli bak­tjalda­makks sem aldrei hélt, og einnig að flokk­ur­inn hafi misst tal­sam­band við verka­lýðs­hreyf­ing­una og atvinnu­líf­ið. Svo fátt eitt sé nefn­t. 



Grein­ingin hjá Árna Páli stuðar eflaust marga flokks­menn, einkum og sér í lagi þá sem voru nærri for­ystu­sveit­inni þegar Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir var for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra. Mörg þess­ara mála sem Árni Páll nefnir voru á odd­inum þegar Jóhanna var í for­ystu flokks­ins í rík­is­stjórn. 



Það er álita­mál hvort flokk­ur­inn er með nægi­lega sterka inn­viði í augna­blik­inu til þess að geta spyrnt sér frá botni. Til þess er erindi flokks­ins algjör­lega óljóst, jafn­vel þó marg­vís­leg stór sam­fé­lags­leg mál séu á odd­in­um, þar sem hefð­bundin félags­hyggju­við­horf rúm­ast vel til lausnar á hinu póli­tíska sviði. Má þar nefna end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins sem íslenska ríkið er nú komið með aftur í fangið eftir mis­heppnað til­raun til útrásar fjár­mála­þjón­ustu með Seðla­banka Íslands sem þrauta­vara­lán­veit­anda með pen­inga­prent­un­ar­vald í krón­um. Eftir stendur ein­angrað hag­kerfi í alþjóða­væddum heim­i. 



Bréf Árna Páls, og til­raunin til að hreinsa and­rúms­loft­ið, getur verið upp­hafið að enda­lokum flokks­ins, eða byrj­un­ar­punktur nýs ferða­lags. Næstu mán­uðir munu leiða í ljós hvort verð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None