Vindum ofan af kostnaðarþátttöku sjúklinga

Dögun verður með á Fundi fólksins.

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
Auglýsing

Fyrstu vik­una í sept­em­ber næst­kom­andi, dag­ana 2. og 3/9, verður Fundur fólks­ins hald­inn í Vatns­mýr­inni. Fundur fólks­ins er nýr vink­ill á sam­fé­lags­mál á Íslandi og er þetta í annað skiptið sem þessi hátíð er hald­in. Já, þetta reyndar kallað lýð­ræð­is­há­tíð, því eitt af markið­unum er að auka á lýð­ræð­is­leg umræðu og lýð­ræð­is­legt sam­tal í land­inu. Og gera það með nýstár­legum hætti. Fyr­ir­myndin er sótt (eins og í mörgu öðru hér á landi) til Norð­ur­land­anna, þar sem upp­á­komur sem þessar fá mikla athygli.

Í Vatns­mýr­inni verður þessa helg­ina sett upp eins­konar tjald­borg eða tjald­torg, þar sem hin ýmsu sam­tök og hags­muna­að­ilar munum kynna starf­semi sína og efna til sam­ræðu og umræðu við almenn­ing. For­svars­menn Fundar fólks­ins aug­lýsa við­burð­inn þannig að þar séu full­trúar ,,þriðja geirans“ í sam­fé­lags­ins á ferð­inni. Það má skilja sem full­trúar almanna­geirans, til aðgrein­ingar frá opin­bera geir­anum og einka­geir­an­um.

Það má kannski segja að hér sé kom­inn til­raun til þess að efla lýð­ræðið í land­inu, en allir vita jú í hvaða kreppu það er. Frá Hrun­inu 2008 hefur traust almenn­ing til stjórn­mál­anna hrapað og umræðan ein­kennst af skot­grafastell­ingum og mjög mik­ill nei­kvæðni. Þessu þarf að breyta og er ástandið í raun óboð­legt alvöru lýð­ræð­is­ríki.

Auglýsing

Stjórn­mála­flokk­ur­inn Dögun er einn þeirra aðila sem verður með á Fundi fólks­ins. Ein­kunn­ar­orð Dög­unar eru rétt­læti, lýð­ræði og sann­girni. Dögun mun líka bjóða fram í næstu alþing­is­kosn­ing­um, sem fara eiga fram þann 29.októ­ber næst­kom­andi.

Flokk­ur­inn hefur upp á að bjóða rót­tækar umbóta­hug­myndir á fjöl­mörgum sviðum sam­fé­lags­ins. Má þar til dæmis nefna hug­mynd­ina um sam­fé­lags­banka, sem flokk­ur­inn kynnti fyrstur flokka og aðrir flokkar úr röðum gamla lúna fjór­flokks­ins hafa ,,af­rit­að“ inn í sína stefnu­skrá. Nefnum engin nöfn, en kómískt er það.

Þá er Dögun einnig með rót­tækar umbóta­hug­myndir í sam­bandi við fjár­mála­kerf­ið, kvóta­kerfið og líf­eyr­is­mál. Í sam­bandi við heil­brigð­is­málin leggur Dögun áherslu á að sú þjón­usta verði fyrir alla, óháð tekjum og búsetu. Við viljum vinda ofan af kostn­að­ar­þátt­töku not­enda heil­brigð­is­kerf­is­ins, sem er orðin yfir­gengi­leg. Slíkt ástand gengur ekki og að sjálf­sögðu spyr fólk sig; í hvað fara skatt­arn­ir?

Dögun vill auka beint lýð­ræði og fara að vilja þjóð­ar­innar í stjórn­ar­skrár­mál­inu, sem kom skýrt fram á sínum tíma, þ.e. að þjóðin setji sér nýja stjórn­ar­skrá. Lof­orð um umbætur á því sviði voru svikin af Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn, enda byggja þessir flokkar til­veru sína á að vernda sér­hags­muni, en ekki almanna­hags­muni.

Um þessi atriði og heild­ar­stefnu Dög­unar má lesa á heima­síðu flokks­ins, www.x­dog­un.is Hvet ég þig les­andi góður til að gera það.

Þáttur fjöl­miðla í Fundi fólks­ins er mik­il­vægur til þess að skapa umræðu og koma henni á fram­færi. Einn þeirra fjöl­miðla sem mun taka þátt í Fundi fólks­ins, er einmitt Kjarn­inn, þar sem þú, kæri les­andi, ert að lesa þessi orð. Verður spenn­andi að fylgj­ast með fram­vindu Fundar fólks­ins hér á vef­síðu Kjarn­ans og öðrum miðl­um.

Að lokum vil ég hvetja þig sem lest þessi orð að kynna þér Fund fólks­ins á vefnum og ekki síður til að taka þátt. Þitt fram­lag er mik­il­vægt til þess að snúa íslensku lýð­ræði til betri veg­ar, því það er hægt. 

Höf­undur er stjórn­mála­fræð­ingur og gjald­keri Dög­un­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None