Uppboðsleiðin virkar!

Kjartan Jónsson
Auglýsing

Á dög­unum vakti það athygli að Fær­ey­ingar seldu kvóta í kolmunna, mak­ríl, síld og þorski á upp­boði sem skil­aði marg­falt meira til rík­is­sjóðs þeirra en veiði­leyfagjöld á Íslandi eru að skila hér fyrir veiðar á sömu teg­und­um. Ein­göngu fær­eysk fyr­ir­tæki fengu að bjóða í kvót­ann og skil­yrðið var að afl­anum væri landað í Fær­eyj­um.

Fljót­lega fór að bera á gagn­rýni á þennan gjörn­ing. Morg­un­blað­ið, í eigu eins stærsta kvóta­eig­anda lands­ins, dró fram for­mann helsta stjórn­ar­and­stöðu­flokks­ins í Fær­eyj­um, sem lýsti óánægju sinni með fyr­ir­komu­lag­ið. Þá var í Fiski­fréttum við­tal við for­ystu­menn stétt­ar­fé­laga sjó­manna, sem höfðu efa­semdir um upp­boðs­leið­ina.

Ein helsta gagn­rýnin á hug­myndir um upp­boðs­leið við úthlutun veiði­heim­ilda hefur í gegnum tíð­ina verið sú að hún leiði til þess að fáir og stórir aðilar kaupi upp allan kvót­ann. Sú varð reyndar raunin í Fær­eyjum – og þar með töldu tals­menn núver­andi úthlut­un­ar­kerfis sig hafa fengið þennan ótta stað­fest­an. En skoðum málið nán­ar. Þorsk­kvót­inn sem um ræðir er í Barents­hafi og það er ekki á færi nema stærri tog­ara að sækja hann þang­að. Upp­sjáv­ar­veiðar á síld og mak­ríl í ein­hverju magni eru líka aðeins á færi stórra sér­út­bú­inna skipa. Það var sem sé ekki verðið sem stóð í vegi fyrir að minni útgerðir gætu tekið þátt – þær eiga ein­fald­lega ekki skip sem geta veitt þennan til­tekna kvóta. 

Auglýsing

Það hefur líka oft komið fram í umræð­unni á Íslandi að auð­velt er að útfæra upp­boð þannig að mála­mynda­gjald sé greitt í upp­hafi en restin síðan tekin við sölu á mark­aði, sem gerir minni útgerðum kleift að taka þátt. Þar að auki eru þeir sem greiða hæst verð fyrir kvóta á Íslandi í dag lítil fyr­ir­tæki sem gera að hluta til eða að öllu leyti út á leigu­kvóta. Verð á leigu­kvóta hefur und­an­farið verið vel yfir 200 krónur fyrir þorsk­kílóið og ljóst að slík fyr­ir­tæki tækju feg­ins hendi því verði sem greitt var fyrir þorsk­kvót­ann í Fær­eyj­um, á milli 60 og 70 krónur kíló­ið.

Ótti sjó­manna er sum­part skilj­an­leg­ur. Auð­vitað ótt­ast þeir að útgerð­ar­menn reyni að sækja auk­inn kostnað til sjó­manna og að breyt­ingin muni valda upp­námi og ótrygg­ara vinnu­um­hverfi. Krafa þeirra hlýtur að vera sú að farið verði var­lega og kerf­inu ekki koll­varpað í einni svip­an. En það þarf líka að vera ljóst að það fé sem rík­is­sjóður er að sækja með upp­boðs­leið­inni er ekki þeirra laun. Ef rétt er á málum haldið verður auð­lind­arentan tekin af óeðli­legum ofur­hagn­aði fyr­ir­tækj­anna í dag sem þau hafa í skjóli aðstöðu sinn­ar, auk þess sem með tím­anum mun létta af grein­inni hinum gríð­ar­lega fjár­magns­kostn­aði sem fylgir kvóta­kaupum í dag. Það mun svo gera fyr­ir­tækj­unum kleyft að bjóða hærri verð í veiði­heim­ildir í fram­tíð­inn­i. 

Höf­undur situr í stjórn Reykja­vík­ur­fé­lags Pírata og skipar 7. sæti á fram­boðs­lista Pírata í Reykja­vík norð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None