Af listum

Svandís Svavarsdóttir
Auglýsing

Menn­ing er rímorð sem þeir nota fyrir sunnan til að ríma við orðið þrenn­ing sagði Steinn Steinn­arr fóstru sína hafa sagt sér aðspurð um merk­ingu orðs­ins. Tæpri öld síðar lifum við á Íslandi í breyttum heimi þar sem umsvif og mik­il­vægi skap­andi greina í hag­kerf­inu eru sívax­andi og um 20.000 manns hafa atvinnu sína af þeim. Þegar Katrín Jak­obs­dótt­ir, fom­aður Vinstri grænna, var Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra lét hún gera úttekt á umsvifum skap­andi greina á Íslandi. Þetta var árið 2009 og í ljós kom að skap­andi grein­ar, kvik­mynda­gerð, mynd­list, hönn­un, tón­list og sviðs­listir tæp­lega 200 millj­örðum á ári. Nú, sjö árum síðar má gera ráð fyrir þónokk­urri aukn­ingu á þessum umsvif­um.

Þess vegna eiga skap­andi greinar að vera hluti af íslenskri atvinnu­stefnu. Það er löngu orðið tíma­bært að hið opin­bera við­ur­kenni veru­leik­ann þegar kemur að umsvifum og mik­il­vægi lista og menn­ing­ar­lífs í land­inu og hlúi að þessum sívax­andi, kvika og mik­il­væga mála­flokki.

Vinstri græn líta á listir og menn­ingu sem slíkan kjarna í sam­fé­lagi okkar að ekki má láta hjá líða að ræða þennan mála­flokk þegar sam­fé­lagið allt er til umfjöll­un­ar. Menn­ing­ar­arfur þjóð­ar­innar og list­sköpun sam­tím­ans eru ekki aðeins mik­il­væg fyrir sjálfs­mynd þjóð­ar­inn­ar, hag­kerfið og and­legt líf okkar heldur líka aðdrátt­ar­afl fyrir stærstu útflutn­ings­grein lands­ins, ferða­þjón­ust­una. Sífellt fleiri ferða­menn koma til lands­ins til að njóta list­við­burða enda er hróður Íslands að miklu leyti bor­inn uppi af lista­mönn­um.

Auglýsing

Und­ir­staðan í þróun skap­andi greina á Íslandi er öfl­ugur Lista­há­skóli. Vinstri græn vilja styðja mynd­ar­lega við starf­semi Lista­há­skóla Íslands og tryggja þar við­un­andi fram­lög á nem­anda og mögu­leika á raun­veru­legri upp­bygg­ingu og fram­þróun skól­ans, bæði kennslu og rann­sókna. Sterkur Lista­há­skóli er mik­il­væg­asti þáttur í þróun og upp­bygg­ingu á sviði lista í land­inu. Okkur ber að virða fram­lag lista­manna til sam­fé­lags­ins og  styðja við starf­semi þeirra og þróun á öllum sviðum með því að hlúa að Lista­há­skól­an­um.

Listir og menn­ing að skipa mik­il­vægan sess í öfl­ugu sam­fé­lagi og eiga mikið erindi á öllum sviðum þess ekki síst þegar sífellt meiri áherslu þarf að leggja á nýsköpun og hug­vit í þróun atvinnu­lífs­ins. Vinstri græn vilja halda þessu til haga alla daga og allt árið um kring en ekki síst nú í aðdrag­anda kosn­inga með skýrum kosn­inga­á­herslum í menn­ing­ar­mál­um.

Höf­undur er þing­maður Vinstri grænna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None