Ísland, hvað ætlarðu að gera þegar þú ert orðin stór?

Aðsend grein eftir Snæbjörn Brynjarsson, frambjóðanda Pírata í Reykja­vík norður.

Snæbjörn Brynjarsson
Auglýsing

Við hvað ættu Íslend­ingar að vinna í fram­tíð­inni? Hvað vilja þeir vinna við? Hvers konar atvinnu­greinum ættum við að hlúa að, ýta undir að fólk mennti sig í og und­ir­búa jarð­veg­inn fyr­ir?

Eigum við að keppa við Hvíta Rúss­land í útflutn­ingi á jarð­vegi? Hvíta Rúss­land er stærsti áburð­ar­fram­leið­andi Evr­ópu, en ég veit ekki hvort það er afleið­ing af vand­lega úthugs­aðri stefnu­mótun eða bara einn af þessum hlutum sem ger­ist af til­vilj­un. Og þó Fram­sókn vildi blása minni kyn­slóð von í brjóst með áburð­ar­verk­smiðju.

Reyndar er þegar búið að kjósa um þetta, alveg óháð því sem stjórn­mála­menn ákveða. Mín kyn­slóð hefur þegar kosið atvinnu­stefnu næstu ára á Íslandi með því að mennta sig. Hún stefnir aug­ljós­lega á vinnu í skap­andi grein­um, í hug­viti, mögu­lega vís­inda­starfi eða hug­bún­að­ar­þró­un. Stjórn­mála­fólkið ræður bara hvar við vinnum í þessum grein­um.

Auglýsing

Hvort við gerum það í hinum Norð­ur­lönd­un­um, ein­hvers staðar í Evr­ópu eða jafn­vel Kana­da, eða hvort við gerum það hér heima. Þetta heitir speki­leki og speki­lek­inn hefur verið 13% síð­asta ára­tug. (Sama hlut­fall af Íslend­ingum flutti til Nor­egs og flutti frá Mexíkó til­ ­Banda­ríkj­anna, ef Ísland væri fjöl­menn­ara ríki væru Norð­menn senni­lega að byggja vegg í miðju norð­ur­atl­ants­hafi).

Það er ekki bara hrun­ið. Það er atvinnu­stefna sem hugsar í plástrum eins og er oft til­hneig­ingin í þriðja heim­in­um. Þá fara póli­tíkusar til Alþjóða­bank­ans og biðja um risa­lán til að byggja einn risa­plástur eins og risa­stíflu. Í stað þess að ein­blína á að styrkja inn­viði eins og sam­göngu­kerfi, bæta sam­skipti með ljós­leið­ara­kerfi og halda þjón­ustu­stigi uppi um allt land (með skólum og heil­brigð­is­þjón­ustu til dæm­is) er verið að fók­usa á eina stíflu og eina verk­smiðju.

Svo­leiðis atvinnu­stefna á ekki á heima á 21. öld­inni. Við þurfum að móta okkur heild­ræna stefnu í þessum málum og setja lang­tíma­mark­mið. Ein góð leið til þess væri að halda þjóð­fund þar sem atvinnu­lífið og almenn­ingur eiga sam­tal um hvert við viljum stefna. Er það hug­bún­að­ar­geir­inn? Er það lyfja­tækni? Er það hönnun eða aðrar skap­andi grein­ar?



Tökum sam­tal­ið. Mótum lang­tíma­á­ætl­un. Enga plástra, ekki eina lausn heldur marg­ar, og eitt­hvað sem raun­veru­lega blæs von í brjóst ungu kyn­slóð­ar­inn­ar.

Höf­undur er fram­bjóð­andi Pírata í Reykja­vík norð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None