Friðarákall aðalframkvæmdastjórans

Auglýsing

Á fyrsta degi mínum í starfi sem aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna liggur eitt mál þungt á hjarta mínu.

Hvernig getum við komið fólki til hjálpar sem flækt er í net átaka og líður gríð­ar­legar þján­ingar af völdum styrj­aldas sem ekki sér fyrir end­ann á?

Ráð­ist er að óbreyttum borg­urum með ban­vænu afli. Kon­ur, börn og karlar eru drepin og særð, neydd til að yfir­gefa heim­ili sín, rænd eignum og skilin eftir bjarg­ar­laus.  Engu er eirt; hvorki sjúkra­húsum né neyð­ar­að­stoð á leið til bág­staddra  

Auglýsing

 Eng­inn sigrar í slíkum stríð­um; allir tapa. And­virði mörg þús­und milj­arða Banda­ríkja­dala er eytt í þeim til­gangi einum að eyði­leggja heilu sam­fé­lögin og hag­kerfi, og skapa víta­hring tor­tryggni og ótta, sem erf­ist frá kyn­slóð til kyn­slóð­ar. Heilu heims­hlut­arnir verða óstöð­ug­leika að bráð og ný hryðju­verka­starf­semi teygir anga sína um allan heim og snertir okkur öll.    

Á Nýárs­degi, bið ég ykkur öll að taka undir ára­mót­heiti:

Setjum frið í fyrsta sæti.

Látum árið 2017 verða árið þegar við öll- borg­ar­ar, rík­is­stjórn­ir, leið­tog­ar- leggjum okkur öll fram við að yfir­stíga það sem skilur okkur að.

Við getum öll lagt okkar lóð á vog­ar­skál­arnar frá því að sýna samtöðu og samúð í dag­legu lífi okk­ar, til að eiga sam­ræðu og sýna þeim virð­ingu sem eru á önd­verðum meiði í stjórn­mál­um. Frá því að koma á vopna­hléi á víg­velli, til að gera mála­miðl­anir til að greiða fyrir pólítískum lausn­um.

Friður verður að vera tak­mark okkar og leið­ar­ljós.

Allt sem við stefnum að sem fjöl­skylda manns­ins – reisn og von, fram­farir og vel­megun – er háð frið­i. 

En friður er háður okk­ur.

Ég hvet ykkur öll til að ganga til liðs við mig í því að helga ykkur friði í dag og alla daga.

Við skulum gera árið 2017 að frið­ar­ári.

Ég þakka ykkur fyr­ir.

Höf­undur er fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None