Þakklæti til „Íslandsvina“

Auglýsing

Í ljós kom í upp­lýs­ingum frá lög­fræði­fyr­ir­tæk­inu Mon­seca – sem er aðeins eitt af mörgum fyr­ir­tækj­um, sem aðstoða fólk við að koma fjár­munum sínum undan skatt­eft­ir­liti – að það hafði veitt 600 Íslend­ingum slíka fyr­ir­greiðslu. ­Sam­tals fjár­hæð­ir, sem þannig voru vistaðar utan­ skatt­eft­ir­lits, nema mörgum þús­undum millj­óna króna sam­kvæmt úttekt á vegum Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála­ráð­herra, sem birt hefur verið eftir langa bið. Það veldur því, að íslenska vel­ferð­ar­kerfið saknar árlega milli 6 þús­und og 9 þús­und millj­ónum króna, sem þessir eig­endur í skatta­skjólum hefðu ella greitt til heil­brigð­is-, mennta-, lög­gæslu- og sam­göngu­mála á Íslandi á hverju ein­asta ári sam­kvæmt úttekt á vegum þessa sama Bjarna. Sum sé eitt stykki nýr Land­spít­ali frá hruni.

9 þús­und Danir

600 Íslend­ingar vistaðir með fé á Tortóla sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá einum milli­göngu­að­ila. Það sam­svarar því, að upp­skátt hefði verið um 9 þús­und Dani í skatta­skjólum fyrir milli­göngu þessa eina aðila. Hversu margir fyrir milli­göngu allra hinna?  Þetta hefði verið frétt ekki árs­ins – heldur ára­tug­ar­ins í Dan­mörku. Og meðal þess­ara 600 eru for­ystu­menn í íslenskri stjórn­skipan og íslensku atvinnu­lífi – auk ósköp venju­legra Íslend­inga sem ákváðu að taka þátt í íslenska þjóð­ar­sport­inu: Að kom­ast undan skatt­mann­i. ­Sleppa við að þurfa að bera byrð­arnar með öllum hin­um. Bara njóta. Eða eins og sagt er á Ísland­i: „Dug­legir að bjarga sér!“

Auglýsing

Færum þeim þakkir

Fólk, sem ekki hefur gert meira en milli­lent á íslenskri grundu, er gjarna sæmt heit­inu „Ís­lands­vin­ir“. ­Mikið hafa félög skráð á Tortólu sýnt land­anum mikla vin­semd. Að minnsta kosti 600 manna hópi! Og öllu þessu for­ystu­fólki! ­Sjálfum þjóð­ar­sóm­an­um! Nú vill svo til, að við hjónin munum á næst­unni koma við á þess­ari „Ís­lands­vina­eyju“ – að vísu skamma stund. Við erum að sjálf­sögðu reiðu­búin til þess að færa þessum vinum Íslands ekki bara kveðjur og þakk­læti frá íslenskum stjórn­völdum – for­sæt­is­ráð­herrum sem og öðrum ráð­herr­um. – heldur líka frá fjár­mála­geir­anum og síð­ast en ekki síst frá þjóð­inni sjálfri. Væri ekki til­valið að við afhentum þeim íslenska þjóð­fán­ann í vin­áttu­skyni sem og eitt­hvað af lamba­kjöt­inu, sem þjóðin hefur ekki efni á að éta og þarf því að gefa útlend­ing­um. Orðu­veit­ingar verða að bíða þar til – og ef – for­seti vor stígur á þessa vin­átt­u­grund.

Allt – nema lamba­kjöt­ið.

Við hjónin erum að sjálf­sögðu reiðu­búin til þess að veita við­töku hér á heim­ili okkar íslenska fán­anum sem og þakk­ará­varpi ráð­herra, fjár­mála­geirans og þjóð­ar­innar og koma til skila. Biðj­umst hins vegar undan því að taka við lamba­kjöt­in­u. Vísum þar heldur á tengda­föður fjár­mála­ráð­herr­ans, hann Bald­vin, sem hvort eð er mun þurfa að ráð­stafa 100 millj­ónum króna af íslensku skattfé til þess að forð­ast að Ís­lend­ing­ar þurfi sjálfir að éta lamba­kjöt­ið. Hversu miklu betur er því nú ekki líka komið á Tortólu? Og vel á minnst. Eigum við ekki líka svona í vin­áttu­skyni að færa þeim brú­negg með­? Bald­vin gæti líka séð um það. V­anir mað­ur­inn – þaul­van­ur. 

Reyn­um­st nú raun­góð­ir.

Góðir Íslend­ingar – for­ystu­menn og þeirra sam­ferða­menn. ­Reyn­umst nú raun­góðir „Ís­lands­vin­um“!

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None