Auglýsing

Deila sjó­manna og útgerða er nú komin inn á borð Rík­is­sátt­ar­semj­ara, eins og kunn­ugt er, og virð­ist staða mála vera við­kvæm. 

Ég benti á það á dög­un­um, að það væri eðli­legt að standa með sjó­mönnum í deil­unni, og að útgerð­irnar þyrftu nú að leysa deil­una með því að gefa frá sér örlít­inn hluta af arð­sem­inni. Meg­in­kröfur sjó­manna snú­ast um að útgerðin borgi aðstöðu­kostnað við vinnu, t.d. fatn­að, inter­net­kostn­að, og fleira. Til við­bótar kemur síðan að skipta gróð­anum með öðrum hætti, en þó er ekki um neinar dramat­ískar hug­myndir að ræða, eftir því sem gefið hefur verið upp. 

Skað­inn af verk­fall­inu, sem staðið hefur frá 14. des­em­ber, er mjög mik­ill. Atvinnu­leysi, vinnu­stöðv­un, stopp á gjald­eyr­is­streymi inn í okkar örsmáa hag­kerfi og versn­andi teng­ingar við alþjóða­lega mark­aði. Svo fátt eitt sé nefnt. Skað­inn þegar reiknað er á verð­mæti afla úr sjó er met­inn á bil­inu 500 til 700 millj­ónir á dag.

Auglýsing

Eitt atriði ættu stjórna­mála­menn að lög­festa sem allra fyrst. Það er að kröfur deilu­að­ila í mál­um, sem fara inn á borð Rík­is­sátta­semj­ara, séu strax birtar opin­ber­lega. Þá falla öll tjöld niður og áróð­urs­stríð­inu lýk­ur. Upp­lýs­ingar liggja þá fyrir og auð­veld­ara er fyrir almenn­ing að glöggva sig á því um hvað er nákvæm­lega deilt og hvaða hags­muni er verið að takast á um. 

Það er aðkallandi að þetta sér gert í þess­ari deilu. Það á ekki að setja fjöl­miðla­bann á neinn, heldur á þvert á móti að gera kröfu um að allar kröfur deilu­að­ila verði birt­ar, þegar full­trúi skatt­greið­anda í deilu­mál­um, Rík­is­sátta­semj­ari, er kom­inn að borð­inu og byrj­aður að stýra við­ræð­un­um.

Lausnin er því frekar að opna upp á gátt frekar og leggja öll spil á borð­ið, frekar en að skipa fólki að fara í fjöl­miðla­bann. Það kann ekki góðri lukku að stýra og endar yfir­leitt í rifr­ildi um það hver rauf bann­ið. Sam­an­ber staðan eins og hún er nún­a. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None