Ekki í boði að stjórnvöld sitji lengur hjá

Gauti Jóhannesson, formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, skrifar um sjómannaverkfallið.

Auglýsing

Sam­tök sjáv­ar­út­vegs­sveit­ar­fé­laga eru sam­tök sveit­ar­fé­laga sem hafa beinna hags­muna að gæta varð­andi nýt­ingu sjáv­ar­auð­lind­ar­inn­ar.  Til­gangur sam­tak­anna er m.a. að standa vörð um hags­muni aðild­ar­sveit­ar­fé­laga og íbúa þeirra í öllum málum sem tengj­ast nýt­ingu sjáv­ar­auð­lind­ar­innar í veiðum og vinnslu.  Stjórn sam­tak­anna fund­aði 3. febr­úar þar sem ályktað var eft­ir­far­andi:

Stjórn Sam­taka sjáv­ar­út­vegs­sveit­ar­fé­laga lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í sveit­ar­fé­lögum allt í kringum landið í tengslum við verk­fall sjó­manna. Verk­fallið hefur nú staðið í u.þ.b tvo mán­uði og er farið að hafa mikil áhrif sem ekki ein­ungis ná til samn­ings­að­ila, heldur einnig stöðu land­verka­fólks og þeirra sem vinna óbein störf í sjáv­ar­út­vegi og eru ekki aðilar að kjara­samn­ingi sjó­manna og útgerð­ar­manna. Í jafn mik­il­vægri atvinnu­grein og sjáv­ar­út­vegi, er ábyrgð aðila mik­il. Ljóst er að staðan er þegar orðin alvar­leg í mörgum sjáv­ar­út­vegs­sveit­ar­fé­lögum og stefnir í óefni að óbreytt­u. 

Stjórn Sam­taka sjáv­ar­út­vegs­sveit­ar­fé­laga hvetur samn­ings­að­ila og rík­is­stjórn Íslands til að leita allra leiða til að liðka fyrir lausn máls­ins, þannig að koma megi í veg fyrir frekara tekju­tap þjóð­ar­bús­ins í heild sinni.

Nú er rétt vika liðin frá því ofan­rituð bókun var gerð og enn eru samn­ings­að­ilar engu nær varð­andi lausn deil­unn­ar.  Áhrifin eru víð­tæk og alvar­leg allt í kringum landið og nú er svo komið að ein­stök sveit­ar­fé­lög þurfa á fyr­ir­greiðslu að halda til að standa við skuld­bind­ingar sínar um næstu mán­að­ar­mót

Auglýsing

Bæði fjár­mála­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hafa lýst því yfir að ekki standi til að ríkið hafi afskipti af kjara­deilu sjó­manna.  Fjár­mála­ráð­herra upp­lýsti, aðspurður um mögu­legan skatta­af­slátt á fæð­is- og dag­pen­inga sjó­manna (Aust­ur­land 3. tbl. 6. árg. 2017 bls. 4) að: „...þorri Íslend­inga myndi vilja sjá þeim varið til upp­bygg­ingar í heilsu­gæsl­unni eða mennta­kerf­inu heldur en að rík­is­styrkja fyr­ir­tæki sem hafa verið að skila tug­millj­arða arði á síð­ustu árum.“  Gott og vel. 

Vand­inn er hins vegar sá að öfl­ugar útgerðir er ekki eini aðili þessa máls. Minni útgerðir og sjáv­ar­byggðir um land allt, sem nú þegar standa margar höllum fæti, eru í hætt­u.  Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur enda: „...­mestar áhyggjur af hinum dreifðu byggðum lands­ins... það er ljóst að tjónið er að verða mik­ið. Bæði úti á landi og, já, á meðal minni útgerða.“ (mbl.is 10. febr­úar 2017). 

Í nýút­kominni skýrslu atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að 2.600 starfs­menn í fisk­vinnslu hafi orðið fyrir tekju­skerð­ingu, 312 millj­ónir hafi verið greiddar í atvinnu­leys­is­bæt­ur, tekju­tap rík­is­sjóðs er 2,5 millj­arðar og tekju­tap sveit­ar­fé­laga er 1 millj­arð­ur.

Það er ekki í boði að stjórn­völd sitji lengur hjá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None