Fjármálaáætlun velferðar og ábyrgðar

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, fer yfir fjármálaáætlun næstu fimm ára sem hann lagði fram í dag. Áherslurnar eru sókn í velferðarmálum, hröð lækkun skulda og ábyrg hagstjórn sem miðar að umhverfi lægri vaxta og stöðugra gengis.

Auglýsing

Í dag legg ég fram á Alþingi fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára. Áætl­unin gerir ráð fyrir sókn í vel­ferð­ar­mál­um, hraðri lækkun skulda og ábyrgri hag­stjórn sem miðar að umhverfi lægri vaxta og stöðugra geng­is. 

Útgjöld til vel­ferð­ar­mála aukast um meira en 20% á tíma­bil­inu og til vel­ferð­ar­mála ann­arra um 13%. Nýtt þjóð­ar­sjúkra­hús rís, greiðslu­þátt­töku­kerfi end­ur­bætt og not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð lög­fest. Frí­tekju­mark vegna atvinnu­tekna eldri borg­ara hækk­ar. List­inn er langur yfir brýn mál sem fá pláss í áætl­un­inni, hvar sem drepið er nið­ur. 

Notum pen­ing­ana betur

Fjár­mála­á­ætl­unin sýnir útgjalda­aukn­ingu. Meg­in­at­riði er þó að þeir 7-800 millj­arðar sem not­aðir eru á ári hverju nýt­ist sem best. Fjár­mála­á­ætl­unin setur því fram ítar­leg mark­mið, aðgerðir og reynt er að setja sem flest mæl­an­leg mark­mið. Þannig getum við betur fetað okkur á þeirri leið að vita hvað ríkið fær fyrir pen­ing­ana og meiri vissu fyrir því að þeir séu að gera það gagn sem við ætl­umst til. Þetta sést í því að obb­inn af blað­síð­unum 360 í áætl­un­inni snýr að þess­ari stefnu­mörk­un.

Auglýsing

Betri virð­is­auka­skattur

Fyrr í vik­unni var sagt frá breyt­ingum á virð­is­auka­skatts­kerf­inu til ein­föld­un­ar. Helstu flokkar ferða­þjón­ustu fara úr lægra þrepi í almennt virð­is­auka­skatt­þrep og ferða­þjón­ustan býr þá við sama skatt­um­hverfi og aðrar helstu atvinnu­grein­ar. Þetta gerir það kleyft að lækka almennt þrep virð­is­auka­skatts um 1,5% og minnka bilið milli þrepanna sem því nem­ur. Veit­inga­þjón­usta verður áfram í lægra þrepi til sam­ræmis við annan mat. 

Neyt­endur hafa af þessu mikla kjara­bót, því þó matur sé í lægra þrepi er nær allt annað í almennu þrepi. Verð­lags­á­hrifin af aðgerð­inni í heild eru talin vera lækkun um 0,4 til 0,5% og færir hún neyt­endum þannig auk­inn kaup­mátt. Þetta er inn­legg rík­is­stjórn­ar­innar til þess að stuðla að hóf­legum launa­hækk­unum og sátt sem verður að ríkja á vinnu­mark­að­i. 

Lægri vextir og stöðugra gengi

Þó áætl­unin fjalli um marga þætti rík­is­rekstr­ar­ins, er hún þó ekki alfa og ómega. End­ur­skoðun pen­inga­stefn­unn­ar, opnun bók­halds, jafn­launa­vottun og umbætur í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi eru til dæmis unnar utan fjár­mála­á­ætl­un­ar­inn­ar. Þá er að hefj­ast vinna við að end­ur­skoða gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi sem hafa mun áhrif á fjár­mála­á­ætl­anir fram­tíð­ar­inn­ar.  Fjár­magns­höft voru losuð fyrr í mán­uð­in­um. 

Ég vinn áfram að því á öllum víg­stöðvum að skapa aðstæður fyrir lægri vexti og stöðugra gengi. Áætl­unin gerir ráð fyrir mun meira aðhaldi en áður og unnið er að auknum fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna erlendis í sam­ráði við þá. Nefnd um umfang pen­inga­stefn­unnar hefur hafið störf.

Í þess­ari áætlun er fetað ein­stigi milli aðhalds og eðli­legrar útgjalda­aukn­ing­ar. Í sam­ræmi við mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar er for­gangs­raðað í þágu heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­mála, á sama tíma og skóla­starf er eflt og milli 20 og 25 millj­örðum króna til við­bótar er varið í sam­göngu­mál miðað við síð­ustu fjár­mála­á­ætl­un. Áætl­unin er metn­að­ar­full á öllum svið­um, byggir upp til fram­tíðar á sama tíma og skuldir eru greiddar nið­ur. Þannig skilum við af okkur búi sem léttir róð­ur­inn á kom­andi ára­tug­um.

Það er bjart framundan á Íslandi þegar skyn­sam­lega er að málum stað­ið. Leið­ar­ljós rík­is­stjórn­ar­innar — jafn­vægi og fram­sýni — bera þessu vitni, og um það fjallar þessi fjár­mála­á­ætl­un. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None