Af hverju sérstök félagsmiðstöð fyrir hinsegin ungmenni?

Auglýsing

Á Íslandi er rík til­hneig­ing til að tala um hvað við stöndum okkur vel og séum frá­bær. Við erum ham­ingju­samasta þjóð í heimi með mesta jafn­rétt­ið. En njótum við öll sömu mann­rétt­inda í raun?

Í þró­un­ar­skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir árið 2016 kemur fram að þótt lífs­kjör séu að batna út um allan heim séu alltaf ákveðnir hópar sem verða eftir í þeirri þró­un. Gerð er rík krafa til þess að unnið sé að jafn­rétti með því að skoða sér­staka stöðu jað­ar­settra hópa og hlusta á reynslu­heim þeirra. Ísland býður að mörgu leyti upp á gott sam­fé­lag fyrir hinsegin ein­stak­linga og hafa náðst mik­il­vægir laga­legir sigrar síð­ustu ára­tugi. Þrátt fyrir það höfum við dreg­ist aftur úr í evr­ópskum sam­an­burði á Regn­boga­kort­inu þar sem farið er yfir laga­lega stöðu og rétt­indi hinsegin fólks. Þann 17. maí síð­ast­lið­inn var alþjóða­dagur gegn hinseg­in­fó­bíu og nýjasta Regn­boga­kortið kynnt. Þar er Ísland aðeins í 16. sæti, neðst af Norð­ur­lönd­unum og á svip­uðum stað og Grikk­land. Til sam­an­burðar var Ísland í 10. sæti á Regn­boga­kort­inu árið 2013 og hafði þá hækkað um eitt sæti milli ára og kom fast á hæla Dan­merk­ur.

Sam­kvæmt nýlegri rann­sókn Evr­ópu­stofn­unar um grund­vall­ar­mann­rétt­indi (FRA) kemur fram að flest börn sem skera sig úr varð­andi kyn­hneigð, kyn­vit­und, kyntján­ingu og kynein­kenni verða fyrir for­dómum og ein­elti í skól­um. Þær fáu rann­sóknir sem gerðar hafa verið á líðan hinsegin nem­enda á Íslandi bera að sama brunni. Hinsegin börn og ung­menni búa við lak­ari lýð­heilsu og verða fyrir mun meira ein­elti en önnur börn. Tíðni þung­lyndis og kvíða er mun hærri og hinsegin ung­menni marg­falt lík­legri en aðrir jafn­aldrar til að gera sjálfs­vígstil­raun­ir.

Auglýsing

Með sam­starfs­samn­ingi við Frí­stunda­mið­stöð­ina Tjörn­ina árið 2016 náðu Sam­tökin ’78 að skapa hinseg­in­væna félags­mið­stöð fyrir 13-17 ára ung­menni. Mið­stöðin er opin eitt kvöld í viku í hús­næði Sam­tak­anna. Þetta fyr­ir­komu­lag hefur orðið til þess að fjöldi hinsegin ung­menna á aldr­inum 13-17 ára sem mætir reglu­lega hefur þre­fald­ast. Ung­menni úr öllum félags­mið­stöðvum í Reykja­vík og á stór-höf­uð­borg­ar­svæð­inu sækja í starfið og er mikil ánægja með það. 

Í upp­hafi árs var gerður sam­starfs­samn­ingur sem gefur starfs­fólki ann­arra félags­mið­stöðva Reykja­vík­ur­borgar kost á að sækja sér skipu­lagt reynslu­nám í hinsegin félags­mið­stöð Ung­liða S‘78. Þar fær starfs­fólkið að kynn­ast því hvernig hægt er að skapa hinseg­in­vænt umhverfi sem það getur svo til­einkað sér og yfir­fært yfir á sína starfs­stað­i. 

Hinseg­in­vænu félags­mið­stöð­inni var komið á lagg­irnar með tíma­bundnum styrkjum frá Reykja­vík­ur­borg og Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu sem báðir renna sitt skeið nú í vor. Við óskum eftir áfram­hald­andi fjár­magni til að starf­rækja hinsegin félags­mið­stöð Ung­liða S’78 svo hægt er að vinna mark­visst að því að bæta lýð­heilsu hinsegin ung­menna og vinna gegn for­dóm­um, mis­munun og ein­elti sem bein­ist gegn hinsegin ung­mennum í skóla og frí­stunda­starf­i. 

Helga Bald­vins­dóttir Bjarg­ar­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ‘78

Hrefna Þór­ar­ins­dótt­ir, forstöðu­maður Hinsegin félags­mið­stöðvar Sam­tak­anna ‘78

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar