Kólesteról og koltvísýringur

Sigurður Ingi Friðleifsson líkir aðgerðum vegna aukist koltvísýrings sem leiðir af sér hlýnun jarðar við það að bregðast við auknu magni kólesteróls til að koma í veg fyrir alvarlega hjartasjúkdóma.

Auglýsing

Fyrir utan sama upp­hafs­staf þá eiga kól­esteról og koltví­sýr­ingur lítið sam­eig­in­legt. Skoðum samt tvær keim­líkar sögur af þessum efn­um.

Kól­esteról

Einu sinni var maður sem átti maka sem var lækn­ir. Mak­inn mældi dag­lega kól­ester­ólið hjá mann­inum og skráði nið­ur. Það hafa löngum verið talin tengsl milli kól­ester­óls og hjarta­sjúk­dóma þar sem blóð­fita getur þrengt eða jafn­vel stíflað æðar. En þetta er ekki ein­falt. Lík­am­inn þarf smá kól­esteról til að starfa rétt en ef það verður of mikið þá aukast lík­urnar á alvar­legum hjarta­sjúk­dóm­um. Í 20 ár höfðu gildin í mæl­ingum manns­ins sveifl­ast lítið en dag einn marg­föld­uð­ust gild­in. Auð­vitað heimt­aði lækn­ir­inn strax að mak­inn tæki sig á, færi að borða holl­ari mat og stunda reglu­lega lík­ams­rækt.

Koltví­sýr­ingur

Einu sinni var heimur sem var fullur af fólki. Vís­inda­menn mældu koltví­sýr­ing í and­rúms­lofti með beinum mæl­ingum og í gegnum ískjarna í jökl­um. Það hafa löngum verið talin tengsl milli koltví­sýr­ings og loft­hita þar sem kolefni í loft­hjúpnum virkar sem ein­angrun þannig að hluti af hita­geislum frá jörðu end­ur­kast­ast.  En þetta er ekki ein­falt. Jörðin þarf smá koltví­sýr­ing svo ekki verði of kalt en ef hann verður of mik­ill þá aukast lík­urnar á alvar­leg­um lofts­lags­breyt­ingum. Í 800.000 ár höfðu koltví­sýr­ings­gild­in sveifl­ast á milli 200 og 250 en á nokkrum ára­tugum ruku þau yfir 400. Auð­vitað heimt­uðu margir að heim­ur­inn tæki sig á og hætti að brenna þetta til­tölu­lega nýfundna jarð­efna­elds­neyti og færi að nota hreinni orku­gjafa.

Auglýsing

Hvað ef?

Segjum sem svo að efa­semd­ar­menn hefðu nú rétt fyrir sér í báðum til­vikum og nýjar rann­sóknir myndu sýna að engin tengsl væru á milli kól­ester­óls og hjarta­sjúk­dóma og engin tengsl milli koltví­sýr­ings og hlýn­unar jarð­ar. Aum­ingja eig­in­mað­ur­inn sæti þá upp með að vera miklu hraust­ari, kom­inn í frá­bært lík­am­legt form og and­lega heilsan betri eftir því.  Aum­ingja heim­ur­inn sæti þá uppi með hreinni orku­gjafa, sjálf­bær­ari orku­nýt­ingu, minna sót og NOx meng­un, meira orku­ör­yggi, hag­kvæm­ari sam­göngur og færri milli­ríkja­deilur vegna mis­skipt­ingu orku­auð­linda. 

Það væri auð­vitað skandall! 

Höf­undur er fram­kvæmda­stjóri Orku­set­urs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar