Við getum betur

Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða krossins á Íslandi, skrifar um alvarlegar fæðuskort sem hrjáir fjögur lönd í heiminum og dregur fjölda manns til dauða dag hvern.

Auglýsing

Alvar­legur fæðu­skortur hrjáir a.m.k. fjögur lönd í heim­inum í dag og þjakar og dregur fjölda barna og full­orð­inna til dauða á hverjum degi. Þessi lönd eru Sómal­ía, Jem­en, Nígería og Suð­ur­-Súdan. Fæðu­skortur sem þessi er án for­dæma og þess vegna verðum við og alþjóða­sam­fé­lagið að bregð­ast við núna strax og stór­auka aðstoð frá þjóðum allsnægta til þeirra sem berj­ast við sult og yfir­vof­andi hung­ursneyðir vegna vopn­aðra átaka og þurrka. Við sem byggjum Ísland og getum aðstoðað eigum ekki að láta okkar eftir liggja og um leið þrýsta á okkar eigin stjórn­völd að gera bet­ur. En af hverju?

Jú, því Íslands­sagan sýnir glöggt hvernig utan­að­kom­andi aðstoð og alþjóð­leg sam­skipti og þar með fleiri tæki­færi geta dregið heila þjóð úr örbirgð til bjarg­álna. Það þarf ekki að fara marga ætt­liði aftur til að finna ein­hvern sem fædd­ist í torf­kofa eða hafði hvorki renn­andi vatn né raf­magn. Slíku ástandi er hægt að breyta en til þess þarf sam­hent átak, sam­hent átak til að gera fólki kleyft að búa heima hjá sér.

Nið­ur­stöður jafn­ingjarýni Þró­un­ar­sam­vinnu­nefndar Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD-DAC) sem kynntar voru í gær sýna svart á hvítu að nauð­syn­legt er að stjórn­völd bregð­ist við og auki fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu. Und­an­farin fimm ár hefur aðeins um 0,22% af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu verið varið til þró­un­ar­sam­vinnu. Ísland hefur hins vegar lengi stutt mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna um að sú tala yrði 0,7% og því er ljóst að við sem þjóð höfum ekki náð að upp­fylla eigin mark­mið.

Auglýsing

Nú er hins vegar lag að gera gott bet­ur. Ef Ísland og önnur vel­meg­andi ríki bregð­ast ekki strax við verður erf­ið­ara að leysa vand­ann. Hund­ruð þús­unda og jafn­vel millj­ónir manna eiga á hættu að verða hung­ur­morða. Enn fleiri munu bíða var­an­legan skaða af. Lítil börn sem fæð­ast en ná ekki að kom­ast til manns vegna vannær­ing­ar. Fyrir utan lík­am­lega og sál­ræna erf­ið­leika sem þetta hefur í för með sér þýðir það einnig færri vinn­andi hendur og meiri sam­fé­lags­legur kostn­að­ur. Börn og verð­andi mæður eru auð­vitað verst útsett fyrir vannær­ingu. Og fólk fer á flótta og reynir að finna betra líf ann­ars staðar þar sem hægt er að lifa af. Hluti þeirra leitar að lokum skjóls á Íslandi.

Tökum höndum saman og gerum það sem við getum til þess að bjarga fólki frá hægum hung­ur­dauða og til sjálfs­hjálp­ar. Fólk vill vera og búa á sínum heima­slóðum og saman getum við í senn bjargað lífi þess og upp­fyllt drauma. Líka okkar eigin drauma um að láta gott af okkur leiða. Þrýstum á stjórn­völd að upp­fylla mark­mið sín og verja hærri fjár­hæðum til þró­un­ar­sam­vinnu.

Höf­undur er sviðs­stjóri hjálp­ar- og mann­úð­ar­sviðs Rauða kross­ins á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar